„Tottenham er í fallbaráttu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 9. febrúar 2026 12:46 Thomas Frank þarf að horfast í augu við að lið hans sé í fallbaráttu samkvæmt Wayne Rooney. Getty/Luke Walker Tottenham á í töluverðri hættu á að falla úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta samkvæmt goðsögninni Wayne Rooney. Liðið hefur ekki unnið leik síðan í desember.
Tottenham vann síðast deildarleik þann 28. desember þegar liðið lagði Crystal Palace 1-0 á Selhurst Park. Síðan þá hafa Spurs spilað sjö leiki án þess að fagna sigri í ensku úrvalsdeildinni. Síðast tapaði liðið fyrir Manchester United um helgina. Þó hefur liðið unnið tvo leiki í Meistaradeild Evrópu, gegn þýsku liðunum Dortmund og Frankfurt, en gengið hefur verið öllu betra þar. Tottenham hafnaði í fjórða sæti deildarhluta keppninnar og er komið áfram í 16 liða úrslit. Heimafyrir situr liðið aftur á móti í 15. sæti með 29 stig, aðeins sex stigum frá fallsæti. Wayne Rooney segir stöðuna dökka í Norður-Lundúnum. „Það mætti segja að þeir séu í fallbaráttu miðað við formið á þeim þessa dagana,“ sagði fyrrverandi framherjinn hjá United í Wayne Rooney-þættinum á BBC. Rooney segir Spursara þurfa að horfast í augu við það að liðið sé í bullandi fallbaráttu.MI News/NurPhoto via Getty Images „West Ham hefur verið í góðu formi, Nottingham Forest nær árangri hér og þar,“ segir Rooney. West Ham er í efsta fallsætinu með 23 stig, Forest í 17. sæti með 26 stig og þá er Leeds United jafnt Tottenham að stigum með 29 í 15.-16. sæti. „Það er ekki hægt að hugsa sér að þeir séu ekki í fallbaráttu þar sem þeir eru. Ég held að þeir muni örugglega horfa um öxl,“ segir Rooney. Spurs hafnaði í 17. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð en fagnaði sigri í Evrópudeildinni og leikur af þeim sökum í Meistaradeild Evrópu. Sæti Thomasar Frank hefur hitnað síðustu vikur en hann tók við stjórastöðu liðsins eftir að Ange Postecoglou var sagt upp í sumar. Heil umferð fer fram í ensku deildinni í vikunni en Tottenham mætir Newcastle United á heimavelli í Lundúnum annað kvöld.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira