Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Aron Guðmundsson skrifar 6. febrúar 2026 21:35 Frá leik Breiðabliks í Sambandsdeild Evrópu undir lok síðasta árs Pawel Cieslikiewicz Fjórir leikir voru á dagskrá A-deildar Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. Fylkir hafði betur gegn ungu liði Breiðabliks og FH valtaði yfir Þrótt Reykjavík.
Í riðli tvö tók Afturelding á móti Gróttu á Malbiksstöðinni að Varmá. Bæði lið leikja í Lengjudeildinni á komandi tímabili og það var Afturelding sem hafði betur í kvöld, 2-0. Bæði mörk heimamanna skoraði Óðinn Bjarkason en hann gekk í raðir Aftureldingar frá KR undir lok síðasta árs eftir að hafa varið síðasta tímabili hjá ÍR. Afturelding er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í Lengjubikarnum en liðið lagði ÍA að velli í fyrstu umferðinni. Grótta er enn án stiga. Börðust síðast á Laugardalsvelli Í riðli eitt tóku Keflvíkingar, sem leika í Bestu deildinni á komandi tímabili, á móti Lengjudeildar liði HK í Nettóhöllinni en þetta eru einmitt liðin sem mættust í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni á Laugardalsvelli á síðasta ári. Þar hafði Keflavík betur. Í leik kvöldsins var það HK sem leiddi með tveimur mörkum, 0-2, í hálfleik eftir mörk frá Arnþóri Ara Atlasyni og Dominik Radic. En heimamenn náðu að svara fyrir sig með mörkum frá Marin Mudrazija og Eiði Orra Ragnarssyni í seinni hálfleik og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli. Þetta var fyrsta stig beggja liða í riðlinum, um fyrsta leik HK var að ræða í Lengjubikarnum þetta árið en Keflavík hafði lotið í lægra haldi gegn Stjörnunni í fyrstu umferð. Markalaust í Dalnum Þá voru tveir leikir á dagskrá fjórða riðils. Á AVIS-vellinum í Laugardalnum tóku heimamenn í Þrótti Reykjavík á móti Bestu deildar liði FH. Þar raðaði liðið úr Hafnarfirði inn mörkum í leik sem endaði 7-0 FH í vil. Adolf Daði Birgisson kom FH á bragðið snemma leiks og í kjölfarið fylgdi þrenna frá Gils Gíslasyni. Kári Kristjánsson bætti við fjórða marki FH og það gegn sínu gamla liði. Mörk frá Benjamín Bæring Þórissyni og Arnóri Borg Guðjohnsen undir lok leiks innsigluðu svo sjö marka sigur FH sem nælir þar með í þrjú stig í sínum fyrsta leik. Þróttur er með sama stigafjölda en hefur leikið tvo leiki. Liðið vann Leikni í fyrstu umferð. Ungum Blikum teflt fram Í sama riðli hafði Fylkir betur gegn Breiðabliki, 3-0. Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks tefldi fram afar ungu liði í kvöld, kærkomin reynsla fyrir ungu stráka félagsins en þeir leikmenn sem eru vanalega í hóp hjá liðinu voru utan hóps í kvöld. Síðasta tímabil var langt hjá Blikum sökum þátttöku liðsins í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar og rennur inn í yfirstandandi undirbúningstímabil fyrir komandi tímaibl Það var Theodór Ingi Óskarsson sem kom Fylki yfir með marki á 20.mínútu. Tvenna frá Guðmundi Tyrfingssyni innsiglaði síðan sigur Fylkis sem sótti sigur í sínum fyrsta leik í Lengjubikarnum þetta árið.
Lengjubikar karla Afturelding Grótta Breiðablik Fylkir HK Keflavík ÍF Þróttur Reykjavík FH Mest lesið Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Körfubolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 35-30 | Valtað yfir stelpurnar okkar í Þórshöfn Handbolti 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Íslenski boltinn Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn Tveggja marka sigur PSG hefði hæglega getað orðið stærri Fótbolti Gaf heila eiginmannsins og hann var með CTE Sport Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur Íslenski boltinn Fjórtán ára þjóðhetja eftir að hann stal miða eins besta markvarðar heims Fótbolti Metfjöldi norrænna kylfinga á Masters og Ísland gæti bæst í hópinn Golf Besta sætið: Davíð tuðaði yfir tuðverðlaununum Sport Fleiri fréttir Víkingar efstir en Þórsarar neðstir í spánni 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Sjá meira