Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. febrúar 2026 14:03 ÍR og Leiknir gætu lagt niður knattspyrnudeildir sínar og stofnað nýtt félag í Breiðholtinu. vísir Vinna er hafin við stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti og niðurlagningu knattspyrnudeilda ÍR og Leiknis. Stefnt er að því að kynna hugmyndina á aðalfundum félaganna í apríl en núverandi aðalstjórn ÍR er ekki hlynnt breytingunni.
Þungavigtar vinnuhópur kemur með hugmyndina Hugmyndin um sameiningu ÍR og Leiknis hefur lengi verið á lofti, alveg síðan um aldamótin, en nú er mun meiri skriðþungi í umræðunni en áður. „Það sem er öðruvísi núna er að það er rosalega mikill þungi í þessum vinnuhóp sem kemur með þessa tillögu. Þetta eru jarðýtur sem hafa starfað mikið fyrir knattspyrnu. Þetta eru allt Breiðhyltingar sem vita hvað þeir eru að gera. Það er það sem er öðruvísi núna, það er meiri þungi á bakvið þetta“ sagði Brynjar Már Bjarnason, formaður knattspyrnudeildar ÍR, í viðtali við Fótbolta.net í gærkvöldi. Þessi vinnuhópur sem hann talar um samanstendur meðal annars af Leiknismönnunum Gunnari Jarli Jónssyni og Þórði Einarssyni, sem héldu kynningarfundinn í gær. Auk þess hefur Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, tekið virkan þátt í umræðunni. Kynningarfundur og nefndir hefja störf Í gærkvöldi hélt knattspyrnudeild ÍR kynningarfund fyrir félagsmenn þar sem starfshópur kynnti verkefnið og í kjölfarið voru skipaðar sex nefndir, með fulltrúum úr báðum félögum, sem eiga að vinna að útfærsluatriðum. Má þar nefna laganefnd sem sér um að útbúa ný lög, rekstrarnefnd sem skoðar hvernig rekstrarformið yrði, markaðsnefnd sem útbýr nýja ásýnd félagsins o.s.frv… Að mörgu þarf að huga til að þetta takist. Væntanlega verður líka eitthvað rætt innan nefndanna um hvernig málum skal háttað í kvennaflokki. Leiknir hefur ekki sent kvennalið til leiks síðan árið 2019 og á síðasta ári hætti allt kvennalið ÍR á einu bretti og ásakaði stjórn knattspyrnudeildar um vanrækslu. Stefna starfshópsins er svo að kynna fullmótaða hugmynd á aðalfundi ÍR og aðalfundi, sem haldnir eru í apríl á hverju ári. Aðalstjórn ÍR ekki hlynnt hugmyndinni Á aðalfundunum í apríl, eða fyrir þann tíma, mun starfshópurinn þurfa að snúa hugum margra sem eru mótfallnir hugmyndinni. Vísir ræddi við formann aðalstjórnar ÍR, Vigfús Þorsteinsson, sem sagði grænt ljós ekki komið á þetta verkefni. Upphaflega hafi hugmyndin verið kynnt fyrir honum sem sameining félaganna í heild sinni, en nú er einungis talað um knattspyrnudeildirnar og það hugnist aðalstjórn ekki. „Þetta hugnast aðalstjórn ekkert sérstaklega, að slíta félagið í tvennt. Þetta hljómaði ekkert illa en svo hefur maður sest niður og hugsað málið, mér finnst ekki spennandi að slíta félagið í sundur“ sagði Vigfús og benti á að ótal mörgum spurningum væri enn ósvarað, þá helst varðandi aðstöðumál og yngri flokka starfsemi. Ljóst er allavega að langur vegur er að stofnun nýs félags í Breiðholti, hugmyndin er ekki fullmótuð til útfærslu, ýmsir hnökrar eru enn sem þarf að slétta úr og margt fólk þarfnast sannfæringar, en vinnan er hafin og henni verður framhaldið.
ÍR Leiknir Reykjavík Lengjudeild karla Lengjudeild kvenna Besta deild karla Besta deild kvenna Mest lesið Arnar og Andrea sigurvegarar Puffin-hlaupsins Sport Valur - KR | Reykjavíkurslagur og bæði lið á flugi Íslenski boltinn Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur Íslenski boltinn Valur - ÍBV 39-33 | Fyrsta högg Valskvenna í markaleik Handbolti Alex Zanardi látinn Sport Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Enski boltinn „Hefði haldið að það væri stefna HSÍ að vernda unga leikmenn“ Handbolti „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Körfubolti Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Það fer í taugarnar á mér“ „Erum með montréttinn á Akureyri“ „Gerist eiginlega ekki betra“ Valur - KR | Reykjavíkurslagur og bæði lið á flugi Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Þróttur og HK á toppnum Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram „Við hlógum bara að því“ Anton Ari í Kópavogi til 2028 Sjá meira