Íslenski boltinn

Matthías í stað Viktors við hlið Sölva

Sindri Sverrisson skrifar
Matthías Vilhjálmsson þekkir það ákaflega vel að vinna titla og ætlar sér eflaust að gera það áfram sem aðstoðarþjálfari í Víkinni.
Matthías Vilhjálmsson þekkir það ákaflega vel að vinna titla og ætlar sér eflaust að gera það áfram sem aðstoðarþjálfari í Víkinni. Vísir/Hulda Margrét

Matthías Vilhjálmsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Víkings í fótbolta. Hann kemur í stað Viktors Bjarka Arnarssonar sem verið hefur aðstoðarþjálfari síðustu tvö ár og fagnað Íslandsmeistaratitli í bæði skiptin.

Matthías varð Íslandsmeistari með Víkingi fyrir ári síðan en lagði þá skóna á hilluna eftir farsælan feril.

Hann hefur þjálfað 2. og 3. flokk karla hjá Víkingi síðasta árið og mun áfram þjálfa 2. flokk samhliða því að aðstoða Sölva Geir Ottesen með aðalliðið.

Matthías varð þrisvar Íslandsmeistari með FH og lék síðan í Noregi með Start, Rosenborg og Vålerenga. Með Rosenborg vann hann fjóra Noregsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Hann lék 16 A-landsleiki fyrir Ísland og skoraði tvö mörk.

Matthías kom til Víkings árið 2023 og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu það ár. Hann varð svo aftur Íslandsmeistari í fyrra eins og fyrr segir, á lokaári sínu sem leikmaður.

„Viktor skilur eftir sig stórt skarð í þjálfarateyminu en við erum sannfærð um að Matti fyllir það. Matti er mesti sigurvegari í sögu íslenskrar knattspyrnu og hefur að meðaltali unnið um einn titil á ári á ferlinum. Það er eiginleiki sem við elskum í Víkingi. Við þekkjum hann vel og berum miklar væntingar til hans í nýju hlutverki,“ sagði Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, á heimasíðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×