Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Aron Guðmundsson skrifar 5. febrúar 2026 07:01 Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, stýrði sínu liði til silfurverðlauna á nýafstöðnu Evrópumóti í handbolta. vísir/vilhelm Fyrrverandi landsliðsmenn Þýskalands í handbolta, sem stýra nú hlaðvarpinu Harzbut, hafa svarað fyrir gagnrýni landsliðsþjálfarans Alfreðs Gíslasonar á sín störf á meðan á EM í handbolta stóð.
Eftir að hafa stýrt Þýskalandi til silfurverðlauna á EM í handbolta ákvað Alfreð Gíslason að senda loks gagnrýnendum sínum tóninn. Alfreð nafngreindi engan þegar hann skaut á gagnrýnendur í viðtali við Bild en þýskir miðlar segja ljóst að hann hafi verið að tala til fyrrverandi landsliðsmannanna Stefan Kretzschmar, Pascal Hens og Michael Kraus sem saman stýra hlaðvarpinu Harzblut. „Við vitum öll að þeir hafa ekki mikið vit á þessu. Þeir sem eru með hlaðvarp þurfa að hafa eitthvað að tala um í hverri viku. Enginn þeirra hefur verið þjálfari. Ég veit hvernig taktískur skilningur þeirra er. Og enginn þeirra spilaði í vörn á sínum tíma,“ sagði Alfreð við Bild eftir úrslitaleikinn við Danmörku. Þríeykið í Harzblut hafa nú svarað gagnrýni Alfreðs í nýjasta hlaðvarpsþætti sínum. „Í fyrsta lagi viljum við byrja á því að óska þér til hamingju með silfurverðlaunin,“ segir Kraus í þættinum og vill koma því skýrt á framfæri að þríeykið séu miklir stuðningsmenn þýska landsliðsins og vilji það besta fyrir liðið. „En við látum ekki þagga niður í okkur. Ef það koma slæmir leikir hjá liðinu, eins og á nýafstöðnu Evrópumóti, eins og er yfirleitt raunin á öllum stórmótum, þá munum við halda áfram að gagnrýna.“ Að sjálfsögðu vilji menn frekar fá hrós heldur en gagnrýni. „En það er ekki það sem við erum að eltast við. Þegar að gengur vel, þá munum við hrósa.“ Kraus segir þá félagana hins vegar taka gagnrýnina til sín það sé eðlilegt að Alfreð svari fyrir sig. „Sér í lagi þar sem að hann er með silfurmedalíu um hálsinn.“ Stefan Kretzschmar tók í svipaðan streng og Kraus og segist hafa spjallað nokkrum sinnum við Alfreð símleiðis á meðan á EM stóð. „Ég mun ekki tjá mig frekar um þetta mál. Mín virðing fyrir Alfreð Gíslasyni sem manneskju er of mikil.“
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira