Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 4. febrúar 2026 13:33 Það er ákveðin, dáldið dýrkeypt, skemmtun fólgin í því að lesa loftslagspistla undir viðskiptasíðum mbl.is. Þar virðist vera starfrækt sérstök deild sem sérhæfir sig í að mála vísindalega samstöðu heimsins sem dularfullt samsæri til þess eins að hafa af almenningi peninga. Nýjasti pistill Sigurðar Más Jónssonar er þar engin undantekning, þar sem hann fer í kunnuglega og vel æfða loftslagsfimleika til að tortryggja loftslagsaðgerðir með því að stilla þeim upp gegn öðru góðu í samfélaginu. Röksemdafærslan er jafn einföld og hún er villandi: Af hverju að nota peninga í „óljós framkvæmdamarkmið“ í loftslagsmálum þegar við gætum, jú, byggt t.d. þrjú háskólasjúkrahús? Þetta getur hljómað skynsamlega þar til maður hugsar út í afleiðingarnar, enda er þetta einföld rökbrella hjá honum. Með sömu rökfræði mætti hætta viðhaldi vegakerfisins („Viltu nýja brú eða nýtt hné?“), skera niður löggæslu eða hætta fjárfestingum í nýsköpun. Enginn ábyrgur stjórnmálamaður myndi spyrja svona, því svarið er augljóst: Nútímasamfélag þarf bæði og hefur burði til beggja. Að stilla nauðsynlegum innviðum framtíðarinnar upp sem óvinum velferðarkerfisins er ódýrt bragð sem þjónar engum nema þeim sem vilja kyrrstöðu og stöðnun. Markaðsbrestur eða markaðsfjandskapur? Það sem er þó kostulegast við málflutninginn er hve mikill „viðskiptafjandskapur“ felst í honum. Hann gerir lítið úr kolefnissköttum sem skattheimtuaðferð. Fyrir fólk sem skrifar undir merkjum viðskipta ætti hugtakið „markaðsbrestur“ að hljóma kunnuglega. Kolefnisgjald er ekkert annað en tilraun til að leiðrétta þann markaðsbrest að fyrirtæki og almenningur geti mengað ókeypis og látið samfélagið borga brúsann síðar. Það er ekkert „hægrisinnað“ við að velta reikningnum af eigin neyslu yfir á komandi kynslóðir. Það að andmæla því að mengun hafi verðmiða er í raun andstaða við heilbrigða markaðshætti. En auðvitað ef fólk er í bullandi afneitun og telur að loftslagsvandinn sé jafnvel bara uppspuni frá rótum þá þarf svo sem ekki að spyrja að leikslokum. Kostnaðurinn við að gera ekki neitt Sigurður Már vísar gjarnan í Björn Lomborg, sem hefur haft atvinnu af því að tína til hagfræðilegar rúsínur í þágu afneitunarinnar í áratugi. En flestir alvöru hagfræðingar, eins og t.d. Nicholas Stern og sérfræðingar hjá Deloitte og Swiss Re, benda á að það sé efnahagslegt glapræði að fresta aðgerðum. Samkvæmt þeirra greiningum er kostnaðurinn við aðgerðaleysi margfalt hærri en fjárfestingin sem við leggjum í núna. Hugtakið Social Cost of Carbon (samfélagslegur kostnaður kolefnis, sjá nánar hér) sýnir okkur að hvert tonn af CO2 sem við losum veldur raunverulegu efnahagslegu tjóni í framtíðinni og veldur kerfisáhættu sem ógnar hagvexti og fjármálastöðugleika til framtíðar, m.a. í formi náttúruhamfara, uppskerubrests og innviðatjóns. Að kvarta yfir 20 milljörðum til að taka á loftslagsvandanum án þess að nefna þær trilljónir sem munu glatast ef ekkert er að gert, er eins og að neita að borga brunatryggingar þegar gardínurnar standa í ljósum logum. Graf, Social Cost of Carbon - samfélagslegur kostnaður kolefnis á hvert tonn Herjólfur og hlutdrægnin Svo er það dæmið um Herjólf. Vegna þess að raforkuverð hækkaði og ferjan þurfti að keyra tímabundið á olíu (sem er reyndar ofsögum sagt), er því slegið upp nánast sem sönnun þess að öll loftslagsvegferðin sé misheppnuð. Þetta er eins og að segja að internetið sé gagnslaust af því að það fór úr sambandinu hjá manni í fimm mínútur á þriðjudegi. Tæknilegar áskoranir í orkuskiptum eru rök fyrir því að við þurfum að gera betur, ekki rök fyrir því að skríða aftur inn í kolefnismóðuna og loka augunum fyrir vandanum. Engin tækni er fullkomin strax, nema jú kannski sú sem framleiðir kaldhæðnina á mbl.is. Eðlisfræði er ekki skoðun Heimurinn er ekki að glíma við „óljós markmið“. Við erum að glíma við eðlisfræði. Og eðlisfræðinni er hjartanlega sama um bókhaldsbrellur pistlahöfunda á mbl.is. Kostnaðurinn við að gera ekki neitt mun mælast í glötuðum tækifærum, veikingu innviða, efnahagslegu tjóni og annarri kerfislægri áhættu sem engin þrjú háskólasjúkrahús munu ráða við. Ef viðskiptadeild mbl.is vill láta taka sig alvarlega sem málgagn í framtíðinni, þá þarf hún að átta sig á því að græna iðnbyltingin er ekki eitthvað bómullarhnoðraverkefni sem má sleppa ef það rignir. Hún er líka risastórt viðskiptatækifæri. En á meðan sumir dunda sér við að telja saman aurana í dagsins amstri, þá ætlum við hin að skoða krónurnar á báðum hliðum jöfnunnar til að byggja upp framtíð sem er raunverulega þess virði að búa við. Því framtíðin verður ekki byggð á afneitun heldur með ákvörðunum byggðum með raunverulega hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi. --- Sjá fyrri greinar höfundar um svipað efni: Mýtuvaxtarækt Loftslagsafneitunar Mýtuvaxtarverkin - inngangskúrs í loftslagsafneitun Hitamál Flatjarðarsinna --- Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Loftslagsmál Mest lesið Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar