Símafrí í grunnskólum Kópavogs Lovísa Arnardóttir skrifar 4. febrúar 2026 09:57 Á myndinni er samráðshópurinn. Frá vinstri: Kristgerður Garðarsdóttir, Amanda K.Ólafsdóttir, Óðinn Helgi Pálsson, Ásdís Kristjánsdóttir, Halla Björg Evans, Bergþóra Þórhallsdóttir, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir og Anna Birna Snæbjörnsdóttir. Á myndina vantar Sigrúnu Bjarnadóttur og Zusönnu Buda. Kópavogsbær Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi hefur verið samþykktur að undangengnu samráði við nemendur, foreldra og fagfólk í grunnskólum í Kópavogi. Í sáttmálanum felst meðal annars að símar eru ekki sýnilegir í skóla- og frístundastarfi og frímínútur verða skjálausar.
Í tilkynningu frá bænum segir einnig að sáttmálinn sé sameiginleg yfirlýsing skólasamfélags Kópavogs. Hann byggi á trausti, samvinnu og ábyrgð í símanotkun. Í samráði við ungmennaráð sé sáttmálinn útfærður með ólíkum hætti eftir aldri barna. Nemendur í 1. - 7. bekk geyma síma og símaúr heima eða á hljóðri stillingu í tösku. Að tillögu ungmennaráðs er nemendum í 8. - 10. bekk treyst til að bera sjálf ábyrgð á að geyma síma þar sem hann truflar þau ekki. Frímínútur verða skjálausar. Þá er einnig lögð áhersla á að fullorðnir í skólastarfi verði fyrirmyndir og að ábyrg skjánotkun sé lærdómsferli. Samhliða innleiðingu sáttmálans verður framboð af afþreyingu í skólum aukið. Ekki hrifin af boðum og bönnum Í tilkynningu frá bænum segir að markmið sáttmálans sé að skapa öruggt og félagslega sterkt skóla- og frístundaumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til þess að einbeita sér að námi, samskiptum og vellíðan. „Þetta er mikilvægt og jákvætt skref sem við erum að stíga með símafríi í grunnskólum og ég fann það þegar ég heimsótti alla grunnskóla Kópavogs að óskir um símafrí komu ekki síst frá nemendum. Þá hef ég einnig fengið fjölmargar ábendingar frá foreldrum um að Kópavogsbær stígi skref sem þetta. Ég er almennt ekki hrifin af boðum og bönnum og þess vegna er svo mikilvægt að þessi ákvörðun sé tekin í samráði við nemendur, starfsfólk og foreldra. Símafrí í grunnskólum þýðir að tækifæri gefst til þess að styrkja félagsleg tengsl nemenda og ekki síst stuðla að aukinni einbeitingu í námi,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, í tilkynningu. Við undirbúning sáttmálans var starfræktur samráðshópur hagaðila sem í sátu Zuzanna Buda og Óðinn Helgi Pálsson, grunnskólanemendur og fulltrúar ungmennaráðs, Halla Björg Evans, fulltrúi foreldra úr stjórn Samkóps, Sigrún Bjarnadóttir skólastjóri Álfhólsskóla, Kristgerður Garðarsdóttir kennari, Bergþóra Þórhallsdóttir verkefnastjóri upplýsingatækni í skólastarfi, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir deildarstjóri grunnskóladeildar Amanda K.Ólafsdóttir skrifstofustjóri menntasviðs og Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs. Nemendur, starfsfólk skóla og foreldrar munu taka virkan þátt í að meta hvernig gengur og fá tækifæri til að koma að endurskoðun sáttmálans þegar reynsla hefur skapast.
Símanotkun barna Börn og uppeldi Kópavogur Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira