Handbolti

„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðs­son að taka frekjukast í beinni og niður­lægja hand­boltann í heild sinni“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku landsliðsþjálfararnir í undanúrslitum EM í ár eða þeir Snorri Steinn Guðjónsson, Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason.
Íslensku landsliðsþjálfararnir í undanúrslitum EM í ár eða þeir Snorri Steinn Guðjónsson, Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason. Vísir/Vilhelm

Dagur Sigurðsson þjálfari Króata vakti menn af værum blundi á blaðamannafundi fyrir undanúrslitaleikina á Evrópumótinu í handbolta en sérfræðingar Besta sætisins á Vísi segja að það hafi alls ekki verið rétti tíminn fyrir slíka umræðu.

Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp Evrópumótið í handbolta. Þeir veltu meðal annars fyrir sér framtíðinni en á næstu tveimur og hálfu ári fer fram heimsmeistaramót í Þýskalandi, Evrópumót á Spáni, í Portúgal og Sviss og Ólympíuleikar í Los Angeles.

Næsta Evrópumót verður aðeins breytt þökk sé Degi Sigurðssyni.„Það er búið að breyta því móti. Dagur Sigurðsson gekk frá því þannig að það er búið að lengja það mót. Það er spurning hvort að, hvort að HM geri eitthvað í sínum málum varðandi sitt mót líka,“ sagði Stefán Árni en Einar tók þá boltann á lofti.

Ofboðslega leiðinleg umræða

„Þetta er ofboðslega leiðinleg umræða. Þessi umræða átti svo náttúrulega aldrei að eiga sér stað á þessu móti. Að vera að gagnrýna þetta á miðju móti, inni í miðju lokaslúttinu,“ sagði Einar.

„Virðist hafa þurft til þess að eitthvað hreyfist,“ skaut Rúnar Kárason inn í.

„Þá eru bara samböndin, talsmenn sambandanna og þeir sem eru að vinna í þessu á milli móta, þegar það eru ráðstefnur og hittingar, þá er það helvíti veikt batterí sem er að vinna í þessum málum fram að þessu. Svona umræða á bara ekki að koma upp inni í miðju móti. Þetta er bara galið,“ sagði Einar.

„Þá verð ég bara að skrifa þetta líka á bara samböndin. Þetta lá fyrir fyrir löngu, löngu, löngu síðan. Þessi umræða á ekki að eiga sér stað. Það er ekki hægt að afsaka sig á bak við eitt eða neitt í þessu að mínu mati,“ sagði Einar.

Gagnrýni hans er þó ekki á landsliðsþjálfarana sem létu heyra í sér.

Ég skil Dag Sigurðsson, ég skil Snorra

„Ég skil Dag Sigurðsson, ég skil Snorra Stein. Ég skil þeirra pirring. Þeir eru ekki að stúdera það fyrir sex mánuðum hvernig dagskráin er, hvenær þeir eigi að mæta á blaðamannafundi eða hvernig rútan verður. Það eru aðrir aðilar innan þessara sambanda sem þurfa að vera með þessa hluti algjörlega á hreinu. Ef menn eru ósáttir, þá verður að koma þeim mótmælum fram á réttum tímapunkti. Þetta var ekki rétti tímapunkturinn,“ sagði Einar.

„Það sem að Dagur gerði vona ég að þá allavega kveiki einhver ljós í fílabeinsturninum sem er þarna einhvers staðar í Mið-Evrópu og menn fari, og tala nú ekki um að það hjálpi til einhvers staðar í Egyptalandi líka. Að þetta verði til þess að mót lengist aðeins og að það verði hugsað meira um hag leikmannanna og gæði leikjanna. Þá verður þetta stórkostlegt,“ sagði Einar.

Allir leikmenn eru brjálaðir og þjálfarinn líka

„Ég hef verið á stórmótum og þessi umræða er í gangi og allir leikmenn eru brjálaðir og þjálfarinn líka. Allir eru bara brjálaðir og ég hef líka bara heyrt kurrið síðustu tíu, tólf árin,“ sagði Rúnar.

„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni til þess að eitthvað hreyfðist og það er bara glatað. Ég er alveg sammála Einari í því að auðvitað eiga sérsamböndin að græja það en það virðist enginn hafa hlustað fyrr en okkar allra besti bara lét menn heyra það, bara með góðri hárþurrku í beinni,“ sagði Rúnar.

Það má hlusta á meira um þetta og annað í kringum íslenska landsliðið í Besta sætinu þar sem menn voru að gera upp lokaleikinn á móti Króatíu sem og allt mótið. Allur þátturinn er aðgengilegur hér fyrir neðan sem og á öllum hlaðvarpssveitum.


Tengdar fréttir

75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig

Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson.

Leynast öflugar ís­lenskar skyttur ein­hvers staðar?

Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu.

„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“

Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 

Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan

Framtíð íslenska karlalandsliðsins í handbolta var til umræðu í Besta sætinu eftir að íslenska liðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í ár. Þar eru sérfræðingarnir sammála um að liðið sé á góðum aldri til að vinna enn frekari afrek á næstu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×