Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. janúar 2026 22:12 Lugi Mangione dvelur í fangelsi í New York. Getty Karlmaður hefur verið handtekinn fyrir að þykjast vera fulltrúi bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) til að frelsa Luigi Mangione úr haldi. Maðurinn var með pítsaskera í fórum sínum.
Mark Anderson gekk inn í fangelsi í Brooklyn á miðvikudagskvöld og þóttist vera lögreglumaður hjá alríkislögreglunni. Hann sagðist vera með dómskjöl sem sögðu til um að leysa ætti Luigi Mangione úr haldi. Aðspurður um skilríki gaf hann upp ökuskírteini sitt frá Minnesota. Anderson sagðist síðan vera vopnaður og hóf að henda skjölum í fangaverðina. Á honum fannst pítsakeri og grillgaffall. Hann er starfsmaður á pítsastað í New York-borg. Hann hefur verið ákærður fyrir að þykjast vera FBI-fulltrúi og á að mæta fyrir dómara á fimmtudag. Heimildir New York Times herma að Anderson hafi verið að reyna frelsa Mangione úr fangelsinu. Bréf, bækur og peningar Þann 4. desember 2024 var Brian Thompson, forstjóri UnitedHealthcare, eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, skotinn til bana fyrir utan hótel á Manhattan. Eftir umfangsmikla leit var Mangione, sem er í dag 27 ára gamall, handtekinn og er hann grunaður um morðið. Sjá nánar: Forstjóri UnitedHealthcare myrtur Hann var ákærður af alríkissaksóknurum fyrir manndráp og fyrir að nota ólöglegan hljóðdeyfi þegar hann skaut Thompson. Héraðssaksóknari í New York ákærði Mangione einnig fyrir manndráp og hryðjuverk en hryðjuverkaákærunum var síðar vísað frá. Enn liggur ekki fyrir hvenær réttarhöld hefjast en Pam Bondi, ríkissaksóknari Bandaríkjanna, hefur sagt að farið verði fram á dauðarefsingu. Mál Mangione vakti gríðarlega athygli og er mikill fjöldi fólks sem hefur sýnt honum stuðning með að styrkja hann fjárhagslega og sent honum bréf, bækur og ljósmyndir. Þá hefur leikhús í San Francisco sett upp söngleik byggðan á sögu hans.
Bandaríkin Forstjóri UnitedHealthcare myrtur Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira