Guðni með uppörvandi upprifjun fyrir slaginn við Dani Sindri Sverrisson skrifar 29. janúar 2026 10:07 Strákarnir okkar unnu frábæran sigur á Slóvenum í gær og þeirra bíður því undanúrslitaleikur við Danmörku annað kvöld. vísir/Vilhelm Íslendingar eiga fyrir höndum undanúrslitaleik við Dani á EM í handbolta annað kvöld, í Herning. Alls eru 47 ár síðan að Ísland vann Danmörku fyrst á útivelli, eins og fyrrverandi forsetinn og sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson rifjaði upp á Facebook.
Guðni man sérstaklega eftir þessum fyrsta útisigri Íslands gegn Danmörku því pabbi hans var þá aðstoðarmaður Jóhanns Inga Gunnarssonar landsliðsþjálfara. „Fyrsti sigur okkar Íslendinga á móti Dönum í handbolta karla á heimavelli þeirra kom í janúar 1979. Við mættum þeim þá í Randers, „handboldens lykkeby“ eins og heimamenn kölluðu borgina. Sigurinn var sætur, 18-15. Mér er þetta mjög minnisstætt því að pabbi, Jóhannes Sæmundsson, var þá aðstoðarmaður Jóhanns Inga Gunnarssonar landsliðsþjálfara. Eftir því var einnig tekið að í 3500 manna höll voru 35 Íslendingar og yfirgnæfðu þeir einatt dönsku áhorfendurna. Það er allt hægt, áfram Ísland!“ skrifaði Guðni á Facebook. Það er ljóst að Íslendingar verða aftur í afar miklum minnihluta í Herning á morgun. Það er fyrir löngu uppselt á undanúrslitin og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir HSÍ til að afla miða stefnir núna í að aðeins um hundrað Íslendingar verði á leiknum. Höllin sem spilað er í, Boxen, tekur um 14.500 manns í sæti. Ljóst er að við ramman reip verður að draga hjá íslenska liðinu enda Danir taldir sigurstranglegastir fyrir mótið. Þeir hafa unnið HM síðustu fjögur skipti í röð og eru einnig ríkjandi Ólympíumeistarar, auk þess að spila á heimavelli, en hafa þó reyndar ekki unnið EM síðan árið 2012. Ísland hefur spilað marga eftirminnilega leiki við Danmörku og Guðni rifjar einnig upp að tæp 58 ár séu síðan að Íslendingar unnu Dani í fyrsta sinn: „Fyrsti sigurinn gegn Dönum kom í Laugardalshöll í apríl 1968. Frábær úrslit, 15-10, og ungu mennirnir voru einna öflugastir samkvæmt blaðafregnum: „Jón H. Magnússon vakti sérstaklega athygli fyrir langskot sín ‒ og fimm mörk. Hann var í essinu sínu þennan dag. En fimm mörkum hefði hann ekki náð án frábærrar aðstoðar og uppbyggingar Geirs Hallsteinssonar, sem skipti eftir skipti opnaði honum skotfæri og sendi honum knöttinn á sama sekúndubroti. En þó þessir tveir skoruðu níu af 15 mörkum ísl. liðsins, áttu aðrir sinn þátt – og ekki slakan.““
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Íslenski boltinn McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira