Engar hópferðir Íslendinga til Herning Sindri Sverrisson skrifar 29. janúar 2026 09:43 Þúsundir Íslendinga fóru til Kristianstad og Malmö til að styðja íslenska liðið áfram í undanúrslitin en þeir þurfa að gera sér að góðu að fylgjast núna með í sjónvarpinu. VÍSIR/VILHELM Skortur á miðum gerir það að verkum að engar hópferðir verða frá Íslandi á undanúrslit Evrópumóts karla í handbolta í Herning á morgun.
Íslendingar bíða spenntir eftir undanúrslitaleiknum við Danmörku annað kvöld og margir reyna nú allt sem þeir geta til að ná sér í miða. Hins vegar er löngu uppselt í höllina í Herning og ekki hægt að fá neina miða núna. Mótshaldarar ábyrgjast aðeins að 100 miðar séu fráteknir fyrir hverja þjóð af þeim fjórum sem spila í undanúrslitum og þeir miðar dreifast væntanlega að mestu á fjölskyldur leikmanna, styrktaraðila og starfsfólk HSÍ. Handknattleikssambandið segir í tilkynningu að ekki verði hægt að bjóða upp á hópferðir frá Íslandi til Herning, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að fá miða. Ekki sé heldur hægt að nálgast staka miða hjá sambandinu. Tilkynningu HSÍ má lesa hér að neðan: Handknattleikssamband Íslands vill upplýsa að því miður verður ekki hægt að bjóða upp á hópferðir frá Íslandi á undanúrslitaleiki Evrópukeppninnar sem fram fara í Herning. Ástæðan er skortur á miðum, sem gerir HSÍ og Icelandair ókleift að skipuleggja hópferðir að þessu sinni. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir við að fá miða frá mótshöldurum hefur það ekki gengið eftir, þar sem löngu er uppselt á úrslitahelgina. Ekki er heldur hægt að nálgast staka miða hjá HSÍ. HSÍ hvetur þjóðina til að safnast saman fyrir leikina, senda strákunum okkar sterka strauma til Herning og mynda góða stemmingu heima fyrir á meðan leikjunum stendur.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira