Getum við munað Ögmundur Ísak Ögmundsson skrifar 29. janúar 2026 07:46 Í mínu lífi hefur pólitík alltaf verið mikið rædd hvort sem það er við matarborðið, í afmælum eða á vinnustaðnum og eftir því sem maður verður eldri og meðvitaðri fer maður að móta betur sínar eigin skoðanir og taka virkari þátt í umræðunni. Það getur verið gott að setja hlutina í samhengi en frá árinu 2010 þegar ég var þrettán ára gamall hafa sömu stjórnmálaöfl verið við stjórnvölinn nær sleitulaust í borginni. Það er langur tími og maður hefði ætlað að á þeim tíma væri hægt að gera gríðarlega mikið af breytingum til hins betra í þágu borgarbúa en einhvern veginn er upplifunin þannig að ekki hafi verið gert nóg. Vissulega hefur ýmsu verið komið í verk og margt af því er gott en það virðist sem áherslan sé að miklu leyti lögð á gæluverkefni í ákveðnum póstnúmerum í staðinn fyrir mikilvægustu málefnin þ.e. grunnþjónustuna sem ætti að vera í númer eitt, tvö og þrjú. Það liggur hreinlega í orðanna hljóðan. Þú getur ekki farið að byggja ofan á fyrr en að grunnurinn er traustur. Á sandi byggði heimskur maður hús eins og segir í þekktu barnalagi.Í hverjum mánuði greiðum við íbúar Reykjavíkurborgar háar upphæðir til borgarinnar og ættum að geta gengið að því vísu að sú grunnþjónusta sem flestir reiða sig á alla daga sé í toppstandi. Sjálfur hef ég oft, síðan ég fór að pirra mig á stóru hlutfalli ýmiskonar frádráttar á launaseðlinum, velt því fyrir mér hvert skattarnir mínir fara því ekki hef ég fengið á tilfinninguna að þeir fari í grundvallaratriðin. Því miður hef ég upplifað ítrekað að sú grunnþjónusta sem ég hef þurft að nýta mér á ýmsum tímapunktum hefur bara ekki verið nógu góð. Biðlistar á leikskólum, mygla í skólanum, gangstéttir ónýtar, ljósastaurar bilaðir, ruslið ekki hirt, götur ekki mokaðar og svo mætti lengi telja. Þetta þarf ekki að vera svona, það er hægt að laga þessi mál en núverandi öfl hafa sýnt greinilega að forgangsröðunin er greinilega ekki á þessa hluti.Það er komin tími á breytta forgangsröðun hér í Reykjavík þar sem lögð er áhersla á að grunnþjónustuna og að hlúa betur að hverju hverfi fyrir sig. Í Reykjavík eru, ótrúlegt en satt, fjölmörg hverfi. Stór hverfi sem að hafa hreinlega mætt afgangi þegar kemur að sýna íbúum virðingu með eðlilegri dreifingu fjármagns. Í stað þess hefur íbúunum verið íþyngt með undarlegum ákvörðunum. Það þarf ekki að leita lengra en til Breiðholts þar sem íbúar vöknuðu eftirminnilega einn morguninn með Græna gímaldið í stofunni hjá sér eða í Laugardalinn þar sem loforð um uppbyggingu fyrir barna- og íþróttastarf hafa verið ítrekað svikin nú eða að líta til Grafarvogsins þar sem borgin ætlar að þétta byggð á svæðum sem engan vegin eru til þess fallin og munu eyðileggja þau örfáu grænu svæði sem gera hverfin svo góð.Framundan eru borgarstjórnarkosningar þar sem okkur íbúum í Reykjavík gefst tækifæri til þess að kjósa breytingar og velja nýja stefnu með alvöru árangri. Í dag er bara einn raunhæfur valkostur og það er að kjósa Sjálfstæðisflokkinn undir forystu Hildar Björnsdóttur! Höfundur er fjölskyldufaðir, íbúi í Reykjavík og formaður Sjálfstæðisfélagsins í Langholtshverfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Sjá meira