Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Sindri Sverrisson skrifar 27. janúar 2026 08:32 Ýmir Örn Gíslason og félagar eru í kjörstöðu eftir sigurinn frækna gegn Svíum. VÍSIR/VILHELM Ísland er í afar jafnri fjögurra liða baráttu um tvö laus sæti í undanúrslitum á EM í handbolta. Liðið verður líklega að vinna Sviss í dag og Slóveníu á morgun til þess að komast þangað.
Strákarnir okkar eru með örlögin algjörlega í eigin höndum eins og staðan er núna, eftir átta marka stórsigurinn á Svíum. Með sigrum í dag og á morgun er líklegast að þeir endi í efsta sæti milliriðils II og mæti liðinu í 2. sæti í milliriðli I. Tap í dag myndi þýða að Ísland yrði að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum. Ísland, Svíþjóð, Slóvenía og Króatía eru með fjögur stig hvert. Endi lið jöfn að stigum ráða innbyrðis úrslit úr leikjum þeirra lokastöðunni. Standings provided by Sofascore Því er það til dæmis þannig að ef að bara Ísland og Króatía enda jöfn að stigum, þá endar Króatía ofar. En ef Ísland, Króatía og Svíþjóð enda jöfn að stigum þá endar Ísland efst þeirra, Svíþjóð næst og Króatía neðst. Ef að Ísland klárar sitt og vinnur báða leikina eru þetta því einu mögulegu niðurstöðurnar. Að Ísland annað hvort vinni riðilinn eða endi í 2. sæti ef Svíar tapa leik en Króatía vinnur sína og endar jöfn Íslandi að stigum. Leikirnir í lokaumferðunum: Þriðjudagurinn 27. janúar 14.30 Ísland - Sviss 17.00 Slóvenía - Króatía 19.30 Svíþjóð - Ungverjaland Miðvikudagurinn 28. janúar 14.30 Ísland - Slóvenía 17.00 Króatía - Ungverjaland 19.30 Sviss – Svíþjóð Eins og fyrr segir er Ísland með örlögin í eigin höndum en tapi liðið í dag breytist sú staða algjörlega. Ísland þyrfti þá klárlega að vinna Slóveníu og treysta á hjálp sem fælist í því að Svíþjóð eða Króatía myndu líka tapa í dag eða á morgun. Sigur í dag myndi líklega ekki duga til að komast í undanúrslit heldur þyrfti liðið einnig að vinna Slóveníu á morgun. Það er aðeins ef að Svíar tækju upp á því að tapa öðrum sinna leikja sem það væri mögulegt að Ísland mætti við því að tapa fyrir Slóvenum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Ekki eru allir sáttir með fyrirkomulagið á Evrópumótinu í handbolta. Þeirra á meðal er Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins. 26. janúar 2026 20:52 Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Eftir sigur Íslands á Svíþjóð í gærkvöld eru fjórar þjóðir jafnar með fjögur stig í okkar milliriðli. Íslendingar eru þar efstir þrátt fyrir að Svíar hafi safnað flestum stigum innbyrðis af þessum fjórum liðum. 26. janúar 2026 08:32 Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Íslenski boltinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira
Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Ekki eru allir sáttir með fyrirkomulagið á Evrópumótinu í handbolta. Þeirra á meðal er Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins. 26. janúar 2026 20:52
Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Eftir sigur Íslands á Svíþjóð í gærkvöld eru fjórar þjóðir jafnar með fjögur stig í okkar milliriðli. Íslendingar eru þar efstir þrátt fyrir að Svíar hafi safnað flestum stigum innbyrðis af þessum fjórum liðum. 26. janúar 2026 08:32