Afnám lagaskyldu til jafnlaunavottunar er gott - en gullhúðað Ólafur Stephensen skrifar 23. janúar 2026 11:16 Félag atvinnurekenda fagnar eindregið frumvarpi Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að fella skyldu til jafnlaunavottunar úr lögum og taka þess í stað upp einfaldara kerfi. Félagið telur þó að ráðherrann hefði getað gert betur og gengið lengra. FA hefur allt frá upphafi verið í hópi þeirra sem hafa gagnrýnt að jafnlaunavottunin væri lagaskylda, þótt hún hafi vissulega gert sitt gagn. Það blasir við að stærðarmörk fyrirtækja, sem ber að undirgangast jafnlaunavottun, voru sett alltof lágt og minni fyrirtæki hafa þurft að leggja út í gífurlegan kostnað og vinnu við vottunarferlið. Skemmst er að minnast þess að Þorsteinn Víglundsson, sem lagði fram frumvarpið um jafnlaunavottun á sínum tíma sem félagsmálaráðherra, viðurkenndi í viðtali við Morgunblaðið í vikunni að gerð hafi verið mistök og gengið of langt; vottunin hafi verið of íþyngjandi fyrir minni fyrirtæki. Þess ber að geta að úttektir á kynbundum launamun benda ekki til að jafnlaunavottun hafi nein bein áhrif á hann; það er ekki marktækt minni launamunur í fyrirtækjum sem hafa fengið jafnlaunavottun en í þeim sem ekki fengu hana. Í núverandi löggjöf er gert ráð fyrir að fyrirtæki með 25 starfsmenn eða fleiri beri skyldu til að undirgangast jafnlaunavottun eða svokallaða jafnlaunastaðfestingu. Í frumvarpi ráðherra er gert ráð fyrir að skyldan miðist við 50 starfsmenn og ferlið sé líkara því sem kallast jafnlaunastaðfesting og stendur í dag fyrirtækjum með 25-50 starfsmenn til boða. Þótt FA telji þetta hvort tveggja til bóta, staldrar félagið við 50 manna stærðarmörkin. Gullhúðun skerðir samkeppnishæfni Í umsögn sinni til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis bendir FA á að í greinargerð frumvarpsins komi fram að það sé að miklu leyti í samræmi við kröfur launagegnsæistilskipunar Evrópusambandsins nr. 2023/970, en vænta má þess að tilskipunin verði tekin upp í EES-samninginn og innleidd hér á landi innan tíðar. Aðeins er lauslega fjallað um tilskipunina í greinargerðinni. FA telur mikilvægt að halda því til haga að í tilskipuninni er miðað við að fyrirtæki með 100 starfsmenn eða fleiri séu skyldug að veita launaupplýsingar. FA ítrekar við þingnefndina það sem félagið hefur í tvígang bent dómsmálaráðuneytinu á í vinnu þess við samningu frumvarpsins, að með því að setja viðmiðið um skyldu til skýrsluskila lægra en í tilskipuninni, þ.e. við fyrirtæki og stofnanir með 50 starfsmenn og fleiri, í stað þess að miða við 100 starfsmenn, er verið að „gullhúða“ tilskipunina. Með því er sköpuð sú hætta að íslenzk fyrirtæki búi að þessu leyti við strangari kröfur og meira íþyngjandi regluverk en fyrirtæki af sömu stærð í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins. Slík gullhúðun skerðir samkeppnishæfni íslenzks atvinnulífs. Í skýrslu hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar, sem vísað er til í greinargerð frumvarpsins, er lögð áhersla á að fjarlægja gullhúðun úr íslenzku regluverki. „Meginregla verði að ekki verði gengið lengra en lágmarkskröfur viðkomandi Evrópugerðar kveða á um nema í undantekningartilvikum, t.d. ef það væri í þágu íslenskra hagsmuna og drægi úr reglubyrði atvinnulífsins,“ segir í skýrslu hópsins. Að mati FA er það frávik frá ákvæðum tilskipunarinnar, sem frumvarpið felur í sér, augljóslega hvorki í þágu samkeppnishæfni íslenzks atvinnulífs né til þess fallið að draga úr reglubyrði atvinnulífsins miðað við ákvæði Evrópureglnanna. Vinnulagið ekki í samræmi við aðgerðir gegn gullhúðun EES-gerða Ekki er í greinargerð frumvarpsins rökstutt með nokkrum hætti af hverju ætti að miða við 50 starfsmenn fremur en 100 eins og gert er í tilskipuninni. Þetta er ekki í samræmi við tillögur starfshóps utanríkisráðherra um aðgerðir gegn gullhúðun EES-gerða, sem kom út í maí 2024. Þar er lagt til að í greinargerð lagafrumvarpa sé greint með skýrum og aðgengilegum hætti frá því hvort ætlunin sé að beita gullhúðun Evrópureglna. Sömuleiðis lagði hópurinn til að rökstyðja skyldi sérstaklega frávik frá EES-reglum og leggja mat á áhrif þess að víkja frá reglunum. Þótt hér sé ekki með beinum hætti um innleiðingarfrumvarp að ræða, hefði að mati FA verið eðlilegt að fara eftir þessu vinnulagi og er miður að það hafi ekki verið gert. Hærri stærðarmörk þýða minni ríkisútgjöld FA leggur eindregið til að miðað verði við 100 starfsmanna markið, í stað 50, og bendir á að með því að fara þá leið ætti líka umtalsverður rekstrarkostnaður að sparast hjá ríkinu, þar sem Jafnréttisstofa þyrfti þá væntanlega færra starfsfólk til að taka við og yfirfara skýrslur um launaupplýsingar. Eins og félagið hefur ítrekað vakið athygli stjórnvalda á (og hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar vitnaði sérstaklega til), þýðir þyngra eftirlit með fyrirtækjum líka fleiri ríkisstarfsmenn og dýrari stjórnsýslu. Ef dómsmálaráðherrann og félagar hennar í stjórnarmeirihlutanum meina eitthvað með tali sínu um að þau vilji einfalda regluverk og afnema gullhúðun, þ.e. ekki ganga lengra en gert er í EES-reglum, gera þau breytingar á frumvarpinu og miða stærðarmörkin við 100 manns. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Kjaramál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar