Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar 31. maí 2026 15:01 Viðskiptaráð birti nýverið greiningu þar sem því er haldið fram að tækifæri barna ráðist fremur af því hvaða grunnskóla þau sækja en raunverulegri getu. Greiningin byggir á samanburði á útskriftarhlutfalli úr framhaldsskóla þremur árum eftir lok grunnskóla, þar sem sýndur er mikill munur á milli skóla, til dæmis 25% hlutfall hjá Fellaskóla á móti 96% hjá Smáraskóla. Þessi leikur með tölur af hálfu Viðskiptaráðs hefur mætt mikilli gagnrýni kennara og sérfræðinga sem benda á að aðferðafræðin sé meingölluð, rannsóknarspurningin röng og að verið sé að nota ósamanburðarhæf gögn til að hamra enn og aftur á skólakerfinu. Til gamans má geta að undanfarin tvö ár hefur ónefndur fjölmiðill birt 200 neikvæðar fréttir um að skólar landsins eru í kalda kolum. Við sem störfum á þeim vettvangi klórum okkur oft í kollinum því það er ekki staðan en það þarf vissulega að koma með sterkari sýn á hvert við ætlum í menntamálum. Tímabilið 2016–2026 mun verða skráð í sögu íslensks menntakerfis sem áratugur þar sem ytri áföll, lýðfræðilegar breytingar og fjárhagslegur þrýstingur reyndu á þanþol skólanna sem aldrei fyrr. Á þessum tíma dýpkaði skuldastaða heimila á höfuðborgarsvæðinu verulega og náði hámarki árið 2021, sem jók á félagslegan þrýsting. Skólum var gert að taka á móti ört stækkandi og fjölbreyttari nemendahópi á sama tíma og þeir mættu kerfisbundnum niðurskurði í grunnstoðum starfsins. Við sem störfum í skólunum höfum fundið hvernig nemendahópurinn hefur breyst á ógnarhraða. Opinber gögn staðfesta þessa upplifun: Árið 2016 voru grunnskólanemendur með erlent móðurmál rúmlega 2.670 talsins á landinu öllu, en árið 2024 var þessi fjöldi kominn í 5.070 nemendur. Í sumum skólum á höfuðborgarsvæðinu hefur hlutfall nemenda með annað móðurmál farið úr því að vera nánast ekki neitt árið 2010 í að vera um 40% nemendahópsins í dag. Þessi þróun krefst gríðarlegs utanumhalds og sérfræðiþjónustu sem kerfið hefur átt erfitt með að fjármagna og manna að fullu þrátt fyrir innleiðingu á Farsæld barna. Samhliða þessari fjölgun hefur staðan í námsgagnagerð versnað til muna. Framlög til þróunar námsgagna eru nú innan við helmingur þess sem þau voru fyrir tveimur áratugum. Ríkið ver nú aðeins um 0,4% af árlegum heildarkostnaði hvers nemanda til námsgagna, á meðan hlutfallið er 1,5–2% í löndum eins og Finnlandi. Skortur á vönduðu, tilbúnu námsefni — sérstaklega fyrir nemendur með annað móðurmál — hefur gert það að verkum að kennarar eyða stórum hluta vinnudagsins í að semja, þýða og aðlaga efni. Í nýlegri skýrslu Ingvars Sigurgeirssonar og Lilju M. Jónsdóttur kemur fram að þessi aukavinna skapi ofurálag, sérstaklega á umsjónarkennara, sem margir hverjir upplifa þrúgandi álag í starfi. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur sjálft varað við því að nota einkunnir og útskriftarhlutföll sem einhlítan mælikvarða á gæði skóla. Í skýrslu ráðherra kemur skýrt fram: Einkunnir við lok grunnskóla eru hvorki samræmdar né staðlaðar á þessu tímabili og endurspegla því ekki sömu færni milli skóla. Skólar standa frammi fyrir gjörólíkum áskorunum vegna félagslegs baklands nemenda, sem hefur meiri áhrif á námsárangur en gæði kennslunnar ein og sér. Lokaeinkunnir í framhaldsskóla byggja á ólíkum hæfniþrepum og námsbrautum (t.d. stúdentsprófi vs. starfsnámi), sem gerir þær óhæfar til einfaldaðs samanburðar. Starfsnám er jú almennt lengra en stúdentspróf. Samt ákveður Viðskiptaráð að nýta þessar upplýsingar í talnaleik sem er fráleitur. Það féll á prófinu eða eins og við tölum í dag „náði ekki lágmarks hæfni“! Að kenna skólunum um mismunandi útskriftarhlutfall án þess að taka tillit til þess að framlög til námsefnis hafa verið skorin niður og nemendahópurinn hefur tekið stórstígum breytingum er villandi. Þessar tölur lýsa ekki vangetu skólanna, heldur vangetu samfélagsins til að styðja við grunnstoðir sínar í gegnum erfiða tíma. Skólarnir hafa verið öryggisnetið sem taka utan um samfélagið, oft á kostnað starfsorku kennara sem hafa þurft að búa til verkfærin sín sjálfir á meðan þeir sinna sífellt fjölbreyttari nemendahópi. Getum við ekki gert betur? Höfundur er skólastjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar