Hættu við að dæma víti og Norðmenn unnu Spánverja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2026 18:45 Patrick Anderson og félagar í norska landsliðinu eru komnir með sín fyrstu stig í milliriðlinum. EPA/Bo Amstrup Norðmenn byrja vel í milliriðli sínum á Evrópumótinu í handbolta þegar liðið vann dramatískan eins marks sigur á Spánverjum í kvöld, 35-34.
Spánverjar fengu lokasóknina á móti fjórum Norðmönnum þar sem tveir Norðmenn voru í skammakróknum. Spænska liðið reyndi að skora sirkusmark en norski hornamaðurinn náði að slá boltann í burtu. Dómarinn dæmdi hins vegar vítakast. Dómaraparið fór síðan fyrir framan skjáinn og leiðréttu í framhaldinu dóminn, hættu við að dæma víti og flautuðu leikinn af. August Pedersen sýndi þarna frábær tilþrif í varnarleiknum en hann átti líka stórleik i sóknarleiknum þar sem hann skoraði ellefu mörk úr þrettán skotum. Tobias Gröndahl hafði komið Noregi í 35-34 í sókninni á undan og það reyndist vera sigurmark leiksins. Bæði lið komu stigalaus inn í milliriðilinn og því lífsnauðsynlegt að landa sigri í dag ætlu þau að berjast um sæti í undanúrslitunum. Norðmenn fögnuðu líka gríðarlega í leikslok. Norðmenn voru tveimur mörkum yfir, 15-13, undir lok fyrri hálfleiks en spænska liðið vann lokakafla hálfleiksins 3-1 og því var staðan 16-16 í hálfleik. Norðmenn skoruðu tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks en þá komu fjögur spænsk mörk í röð. Eftir það var spænska liðið skrefinu á undan í góðan tíma en það munaði þó aldrei miklu á liðunum. Norðmenn fundu lausnir með því að spila sjö á móti sex og náðu að taka frumkvæðið með frábærum 7-3 spretti þegar þeir breyttu stöðunni úr 26-23 fyrir Spán í 30-29 fyrir Noreg. Leikurinn var áfram gríðarlega spennandi og jafnt á öllum tölum undir lokin. Það voru aftur á móti Norðmenn sem skoruðu síðasta mark leiksins og tryggðu sér sigurinn.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira