Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. janúar 2026 23:30 Ólafur Þ. Harðarson segir erfitt verkefni bíða þess sem kjörinn verður formaður Framsóknar. Vísir/Ívar Fannar Fyrsti frambjóðandinn til að tilkynna framboð til formanns Framsóknar steig fram í dag. Tveir til viðbótar liggja undir feldi en flokkurinn velur sér nýjan formann á flokksþingi í febrúar. Stjórnmálafræðingur segir um tímamótaákvörðun að ræða enda hafi flokkurinn aldrei verið í erfiðari stöðu.
Eftir áratug í starfi tilkynnti Sigurður Ingi Jóhannsson í október að hann myndi ekki bjóða sig fram aftur til formanns Framsóknar á flokksþingi sem fer fram um miðjan febrúar. Síðan þá hefur leit staðið yfir að arftaka hans á bak við tjöldin og ýmis nöfn ítrekað verið nefnd til sögunnar. Það var hins vegar ekki fyrr en í dag sem baráttan um Framsókn hófst fyrir alvöru þegar Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður lýsti formlega yfir framboði til formanns. Enn liggja þó tveir undir feldi, þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir varaformaður flokksins og Willum Þór Þórsson fyrrverandi þingmaður. En um hvað mun baráttan um Framsóknarflokkinn snúast? „Ja, staða Framsóknarflokksins núna er erfiðari heldur hún hefur verið nokkurn tímann í 110 ára sögu flokksins,“ segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði. „Þannig að formannsins bíður erfitt verkefni og mér þykir líklegast að slagurinn snúist bara um það hvern Framsóknarmenn telja líklegastan til að snúa gengi flokksins við og auka fylgið.“ Þannig mældist flokkurinn síðast í þjóðarpúlsi Gallup rétt með um 5,2 prósenta fylgi og áður hefur flokkurinn mælst út af þingi. Willum segist í samtali við fréttastofu enn vera undir feldi. Ekki hefur náðst í Lilju en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hún þegar hafið undirbúning við framboð sitt og hafist handa við að skrá fulltrúa á flokksþing. Ingibjörg Isaksen segist vonast eftir mótframboði og segir landsmenn kalla eftir breytingum. „Þetta snýst um hvernig við viljum sjá Framsókn vaxa, hvernig við viljum sjá Framsókn sem það áhrifaafl sem við viljum sjá til framtíðar, þannig við getum raunverulega haft áhrif fyrir íslenskt samfélag,“ segir Ingibjörg. Willum og Lilja hafa ekki átt sæti á þingi síðan í síðustu alþingikosningum. Willum kom fyrst inn á þing árið 2013, Lilja 2017 en Ingibjörg árið 2021. „Þau eru þekktari stærð en það geta líka falist tækifæri í því að vera óþekkta stærðin. Ég er inni á þingi með tvo þingmenn úr mínu kjördæmi, sterkt kjördæmi á bakvið mig og það er mikilvægt líka að við höfum sterka og mikilvæga rödd á Alþingi.“
Framsóknarflokkurinn Sveitarstjórnarmál Alþingi Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Fleiri fréttir Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Sjá meira