„Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Jakob Bjarnar skrifar 20. janúar 2026 16:20 Össur bókstaflega hellir sér yfir Sigmar og sakar hann um stæka aldursfordóma. vísir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra með meiru, hundskammar Sigmar Guðmundsson, þingmann Viðreisnar, og sakar um aldursfordóma.
Sigmar setti inn sakleysislegar línur á Facebook-síðu sína en þar er hann eins og svo margir aðrir að velta fyrir sér stöðu Bandaríkjaforseta sem er í fréttum mörgum sinnum á dag. „Það er talsvert framboð af öldnum höfðingjum sem horfa vestur um haf með aðdáun. Þeir eru sem betur fer allir fyrrverandi hitt og þetta.“ Margir telja Sigmar hafa lög að mæla og er tiltölulega rólegt á Facebook-síðu þingmannsins en hann setti þennan status inn fyrir 18 tímum, allt þar til Össur rífur upp penna. Og honum er heitt í hamsi: „Kanntu ekki mannasiði, mannfjandi?! Ég og þú kunnum að vera annarrar skoðunar en Ólafur Ragnar Grímsson á Evrópusambandinu en skoðanir hans á því, Bandaríkjunum og eftir atvikum öðrum stórveldum, eru fullrar virðingar verðar og þú eða þið í Viðreisn vinnið enga slagi, allra síst um Evrópu, með því að tala niður til fólks.“ Össur er ekki hættur. Hann segir Björn Inga Hrafnsson, hægri hönd Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, hafa lesið orð Ólafs Ragnars úr Silfrinu um aðferðafræði hárrétt og svo hafi verið um marga fleiri sem eru sömu skoðunar. „Bara svo þú vitir það. Fyrir hönd allra „aldraðra höfðingja“ og „fyrrverandi“ segi ég bara: Betur væri ef Viðreisn hefði einhverja slíka í sínum röðum. Eitt er að klúðra niður fylginu en mér sýnist að þið séuð á sömu leið með Evrópumálin. Sparaðu þér svo aldursfordóma næst þegar þú sest við skjáinn, sem þú út af fyrir sig mættir alveg sleppa.“
Bandaríkin Donald Trump Samfélagsmiðlar Viðreisn Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Sjá meira