Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 20. janúar 2026 13:36 Tilkynningum um heimilisofbeldi hefur fjölgað nokkuð á undanförnum árum. Myndin er úr safni og er sviðsett. Vísir/Getty Tilkynningum til lögreglu vegna heimilisofbeldis fjölgaði um tvö prósent í fyrra samanborið við síðustu þrjú ár á undan en alls fékk lögregla 2.485 slíkar tilkynningar á síðasta ári. Það jafngildir að meðaltali tæplega sjö tilkynningum á dag en flestar tilkynningar um heimilisofbeldi bárust í desember, eða 138 tilkynningar. Tilkynningum um ofbeldi foreldra gegn börnum hefur fjölgað einna mest á milli ára. Innan við þriðjungur þolenda heimilisofbeldis segist hafa tilkynnt um ofbeldið til lögreglu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra í morgun þar sem vísað er í skýrslu þar sem tekin er saman tölfræði yfir tilkynningar til lögreglu um heimilisofbeldi og ágreining á milli skyldra og tengdra aðila. „Áberandi er aukning tilvika sem flokkast undir endurtekna eða alvarlega hótun gegn lífi og heilsu samkvæmt 218. gr. b almennra hegningarlaga. Slík tilvik voru 156 árið 2025 miðað við 116 árið 2024, sem er tæplega 35% aukning. Beiðnir um nálgunarbann voru 95, og fjölgaði þeim um 16% miðað við árið 2024. Ef borið er saman við meðaltal síðustu þriggja ára á undan fækkaði beiðnum um 5%,” segir meðal annars í tilkynningunni. Flest mál á milli para og meðalgerandinn er karlmaður á fertugsaldri Þá hefur þeim tilfellum einnig farið fjölgandi þar sem foreldri beitir ofbeldi gegn barni sínu. Slíkum málum fjölgaði um 13% á milli ára, úr 142 árið 2024 og í 160 í fyrra. „Í heildina voru karlar grunaðir um að vera árásaraðilar í tæplega 74% allra heimilisofbeldismála og konur voru 65% árásarþola. Meðalaldur árásaraðila var 36,6 ár og meðalaldur árásarþola var 33,5 ár. Þegar aldursdreifing er skoðuð kemur í ljós að 26% árásarþola voru yngri en 26 ára árið 2025 og 19% árásaraðila,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Athygli vekur einnig að heimilisofbeldismál á milli para, það er núverandi eða fyrrverandi, voru 791 í fyrra sem er fjölgun um 4% miðað við síðustu þrjú ár á undan. Alls eru tæplega tveir þriðju allra tilkynntra heimilisofbeldismála á milli para. Aðeins þriðjungur þolenda tilkynnt heimilisofbeldi til lögreglu Tæpur þriðjungur allra heimilisofbeldismála voru tilkynnt til lögreglu á landsbyggðinni en 73% á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfallið á landsbyggðinni var þó ögn hærra á landsbyggðinni hvað varðar ágreiningsmál eða 33% samanborið við 67% á höfuðborgarsvæðinu. „Í þolendakönnun lögreglunnar, sem lögð er fram árlega, er spurt um reynslu af afbrotum árið áður. Í niðurstöðum könnunarinnar árið 2025 sögðu 1,3% svarenda hafa orðið fyrir heimilisofbeldi af hendi maka eða fyrrum maka og af þeim sögðust 29% hafa tilkynnt tilvikið til lögreglu. Í Íslensku æskulýðsrannsókninni árið 2025 sögðust 7% nemenda í 9. bekk og 9% nemenda í 10. bekk hafa orðið vitni að ofbeldi gegn foreldri,“ segir loks í tilkynningunni, þar sem einnig er bent á að alltaf megi tilkynna um brot með því að hafa samband við Neyðarlínuna eða í gegnum ofbeldisgátt 112.is.
Lögreglan Lögreglumál Heimilisofbeldi Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira