Með einkarétt á internetinu? Ólafur Stephensen skrifar 17. janúar 2026 07:02 Í tveimur öðrum greinum hér á Vísi hefur greinarhöfundur fjallað um það hvernig stjórnmálamenn ýta frá sér því brýna verkefni að endurskoða áfengislöggjöfina, m.a. með tilliti til þess að hún kveði skýrt á um að vefverzlun með áfengi sé heimil, en kjósa þess í stað að einstaklingar séu settir á sakamannabekk og þess krafizt að þeir verði dæmdir til refsingar fyrir að bjóða íslenzkum neytendum að kaupa áfengi á netinu. Það er þó starfsemi, sem fyrirtæki annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu hafa stundað með löglegum hætti í þrjá áratugi. Ákæra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á hendur forsvarsmanni Kjútís, félagsmanns í Félagi atvinnurekenda, og krafa um að hann verði dæmdur til refsingar, byggist á því að með rekstri netverzlunar hafi fyrirtækið brotið gegn ákvæðum áfengislaga um einkarétt íslenzka ríkisins á smásölu áfengis. Skoðum það aðeins nánar. Einkarétturinn er ekki einkaréttur Raunveruleikinn er sá að ríkið hefur ekki lengur neinn raunverulegan einkarétt á smásölu áfengis. Netverzlanir eru staðreynd og hafa stjórnvöld ekki haft nein teljandi afskipti af starfsemi þeirra flestra, með þeirri undantekningu að þessi eina ákæra hefur verið gefin út, að því er virðist aðallega til þess að ríkisvaldið geti sjálft áttað sig á því hvaða lög séu í gildi. Smáframleiðendum hefur verið veitt lagaheimild til að selja áfengi á framleiðslustað – og sú sala hafði raunar farið fram um árabil án lagaheimildar, en jafnframt án athugasemda eða inngripa löggæzlunnar. Fjöldi vínáhugamanna fær í gegnum vínklúbba allt sitt léttvín og meira til, en það áfengi fer ekki um áfengisútsölur ríkisins og ekkert hefur heyrzt af afskiptum lögreglunnar. Vegasjoppur og matvöruverzlunin í Leifsstöð selja fólki óopnað áfengi til að hafa með sér án athugasemda stjórnvalda – og er þó þéttni starfsmanna löggæzlunnar óvíða meiri en á alþjóðaflugvellinum. Ríkið einkavæðir einokun Í erindi til Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra fyrr í vikunni benti FA á að fjármálaráðuneytið var sjálft með í ráðum er þýzka einkafyrirtækinu Heinemann var með útboði falið að reka stærstu vínbúð landsins, fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli. Skemmst er að minnast bréfaskipta FA og ráðuneytisins síðastliðið vor, en í marz óskaði FA upplýsinga um hvort ráðuneytið teldi vöruvalsreglur, sem settar voru um ríkiseinkasöluna í Fríhöfninni eftir afskipti Eftirlitsstofnunar EFTA, gilda um verzlun Heinemann eftir að það fyrirtæki tók við rekstri Fríhafnarinnar. Í svari ráðuneytisins, sem barst í apríl, var undirstrikað að ákvæði tollalaga, sem vöruvalsreglurnar byggðust á, giltu ekki um einkaaðila og ekki færi á milli mála að Heinemann væri einkafyrirtæki. Ríkið hefur því ekki aðeins einkavætt Fríhöfnina, heldur búið svo um hnúta að þrátt fyrir að vera í einokunarstöðu á Keflavíkurflugvelli þarf einkafyrirtækið ekki að fara eftir reglum, sem ætlað var að tryggja jafnræði og gegnsæi í viðskiptum við birgja. Óþolandi staða fyrir fyrirtæki á áfengismarkaði Allt ber þetta að sama brunni. Einkaréttur ríkisins er í orði, en ekki á borði. Fjöldi undantekninga er á honum og fyrir mörgum þeirra hefur íslenzka ríkið beitt sér sjálft. FA telur að Daði Már ráðherra verði að axla ábyrgð á því verkefni, nú þegar áfengislögin heyra undir ráðuneyti hans, að hafa frumkvæði að heildarendurskoðun áfengislöggjafarinnar sem taki m.a. mið af þeirri þróun sem að ofan er lýst. Það er algjörlega óþolandi fyrir fyrirtæki sem starfa á áfengismarkaðnum að alls konar starfsemi, sem er ekki í samræmi við áratugagamlan og úreltan lagabókstaf, sé látin óáreitt af hálfu stjórnvalda en einstök fyrirtæki megi sæta handahófskenndum geðþóttaákvörðunum lögreglu um inngrip í starfsemi þeirra og hótunum um fangelsisvist forsvarsmanna þeirra, á grundvelli sömu löggjafar. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Ólafur Stephensen Tengdar fréttir Er betra að fólk sé sett á sakamannabekk en að stjórnmálamenn vinni vinnuna sína? Í síðustu grein var fjallað um það hvernig stjórnmálamenn hafa heykzt á því viðfangsefni sínu að ráðast í heildarendurskoðun á áfengislöggjöfinni sem taki tillit til samfélags- og viðskiptaþróunar undanfarinna áratuga, m.a. þróunar innlendrar og erlendrar netverzlunar. 16. janúar 2026 11:30 Endurskoðun áfengislöggjafarinnar er verkefni stjórnmálanna Félag atvinnurekenda hefur sent Daða Má Kristóferssyni fjármála- og efnahagsráðherra erindi og hvatt ráðherrann til að hafa frumkvæði að endurskoðun áfengislöggjafarinnar. 15. janúar 2026 12:17 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Er betra að fólk sé sett á sakamannabekk en að stjórnmálamenn vinni vinnuna sína? Í síðustu grein var fjallað um það hvernig stjórnmálamenn hafa heykzt á því viðfangsefni sínu að ráðast í heildarendurskoðun á áfengislöggjöfinni sem taki tillit til samfélags- og viðskiptaþróunar undanfarinna áratuga, m.a. þróunar innlendrar og erlendrar netverzlunar. 16. janúar 2026 11:30
Endurskoðun áfengislöggjafarinnar er verkefni stjórnmálanna Félag atvinnurekenda hefur sent Daða Má Kristóferssyni fjármála- og efnahagsráðherra erindi og hvatt ráðherrann til að hafa frumkvæði að endurskoðun áfengislöggjafarinnar. 15. janúar 2026 12:17
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar