Vaktin: Náð tökum á stórbrunanum í Gufunesi Agnar Már Másson og Eiður Þór Árnason skrifa 12. janúar 2026 17:08 Allt tiltækt slökkvilið var kallað út. Hilmar Örn Þorbjörnsson Mikill eldsvoði kviknaði í Gufunesi í Reykjavík og sást reykur víða um höfuðborgarsvæðið. Slökkviliðið hefur náð tökum á eldinum. Stjórnarformaður True North segir að mikið tjón hafi orðið á eignum framleiðslufyrirtækisins en TrueNorth leigir skemmuna af Reykjavíkurborg. Klukkan 17:03 barst lögreglu tilkynning um mikinn eld í skemmu við Gufunesveg í Grafarvogi. Stigabíll slökkviliðs, dælubílar og sjúkrabílar mættu á vettvang skömmu síðar en þá blasti við eldhaf sem náði um tólf metra í loftið, að sögn sjónarvotts. Lögregla varaði íbúa í nágrenni við Gufunesveg að loka gluggum þar sem mikinn reyk lagði frá skemmunni. Íbúar í nærliggjandi hverfum lýstu mikilli brunalykt, svo sem í Grafarvogi og Árbæ. Skemman er í eigu Reykjavíkurborgar en TrueNorth hefur leigt hana að undanförnu. Stjórnarformaður TrueNorth segir að í skemmunni hafi mátt finna sögulega muni sem framleiðslufyrirtækið hafi notað í bíómyndum sem erfitt sé að bæta með peningum. Upp úr klukkan 19 hafði slökkvilið náð góðum tökum á eldinum og kallað helming af liði sínu til baka. Um klukkan 21 var að mestu búið að slökkva eldinn og einungis þrír slökkviliðsmenn eftir á svæðinu til að slökkva eldhreiður sem gætu kviknað undir rústunum. Fylgst verður með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki þá er ráð að endurhlaða síðunni. Veistu meira um málið? Sendu okkur upplýsingar og myndir hérna.
Klukkan 17:03 barst lögreglu tilkynning um mikinn eld í skemmu við Gufunesveg í Grafarvogi. Stigabíll slökkviliðs, dælubílar og sjúkrabílar mættu á vettvang skömmu síðar en þá blasti við eldhaf sem náði um tólf metra í loftið, að sögn sjónarvotts. Lögregla varaði íbúa í nágrenni við Gufunesveg að loka gluggum þar sem mikinn reyk lagði frá skemmunni. Íbúar í nærliggjandi hverfum lýstu mikilli brunalykt, svo sem í Grafarvogi og Árbæ. Skemman er í eigu Reykjavíkurborgar en TrueNorth hefur leigt hana að undanförnu. Stjórnarformaður TrueNorth segir að í skemmunni hafi mátt finna sögulega muni sem framleiðslufyrirtækið hafi notað í bíómyndum sem erfitt sé að bæta með peningum. Upp úr klukkan 19 hafði slökkvilið náð góðum tökum á eldinum og kallað helming af liði sínu til baka. Um klukkan 21 var að mestu búið að slökkva eldinn og einungis þrír slökkviliðsmenn eftir á svæðinu til að slökkva eldhreiður sem gætu kviknað undir rústunum. Fylgst verður með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki þá er ráð að endurhlaða síðunni. Veistu meira um málið? Sendu okkur upplýsingar og myndir hérna.
Reykjavík Slökkvilið Bruni í skemmu í Gufunesi Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira