Tímabært að koma böndum á gjaldskyldufrumskóginn Hanna Katrín Friðriksson skrifar 9. janúar 2026 10:02 Stöðum þar sem innheimt eru bílastæðagjöld hefur fjölgað ört undanfarin ár. Samhliða hefur þeim fyrirtækjum fjölgað sem bjóða upp á tæknilegar lausnir og þjónustu við gjaldtökuna og á sama tíma höfum við ítrekað heyrt frá neytendum sem kvarta yfir viðskiptaháttum á gjaldskyldum bílastæðum, skorti á upplýsingum, merkingum og handahófskenndri framkvæmd. Við vitum líka að málið hefur verið til mikillar umræðu innan ferðaþjónustunnar þar sem ferðamenn eru neytendur og fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa mörg hver lent í vandræðum vegna gjaldskyldra bílastæða. Almennt má segja að regluverk sem snýr að gjaldtöku á bílastæðum hér landi hafi ekki fylgt þessari þróun eftir. Við í atvinnuvegaráðuneytinu töldum því ástæðu til að kafa dýpra í málaflokkinn og höfum frá því í haust haft hann til sérstakrar skoðunar, í góðu samstarfi við innviðaráðuneytið og Neytendastofu. Við höfum fundað með helstu aðilum til að fá fram skýrari mynd á núverandi framkvæmd, kortleggja stöðuna og í framhaldi vinna tillögur til úrbóta út frá aukinni neytendavernd. Vinnan er enn í gangi en á opnum morgunverðarfundi í gær kynnti ég þær aðgerðir sem unnið er að, annars vegar til skemmri og hins vegar til lengri tíma. Mikilvægi ákvæðis um bann við óhæfilegum samningsskilmálum Í nóvember mælti ég fyrir frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga. Um er að ræða rammalöggjöf á sviði neytendamála og endurskoðun á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Í því er að finna ýmis ný ákvæði sem m.a. taka utan um vandann þegar kemur að gjaldskyldu á bílastæðum en hér vil ég sérstaklega nefna ákvæði sem felur í sér skýra heimild fyrir Neytendastofu til að banna notkun samningsskilmála á milli fyrirtækis og viðskiptavinar sem eru taldir óhæfilegir gagnvart neytendum. Afar mikilvægt er að slík heimild sé til staðar til að rétta af þann aðstöðumun sem kann að vera á milli neytenda og fyrirtækja sem semja skilmála einhliða á sínum forsendum frekar en neytenda. Fyrirséð er að ákvæðið muni nýtast í aðgerðum stjórnvalda þegar kemur að gjaldtöku á bílastæðum, og þá fyrst og fremst Neytendastofu við að fara yfir skilmála fyrirtækja sem sinna slíkri gjaldtöku, og banna skilmála ef þeir eru taldir óhæfilegir gagnvart neytendum. Dæmi um slíkt gæti verið ef vangreiðslugjald er margfalt hærra en fjárhæð upprunalegrar gjaldskyldu eða ef frestir til greiðslu bílastæðagjalds eru óraunhæfir. Frumvarpið er sem stendur í þinglegri meðferð að lokinni fyrstu umræðu og bind ég vonir við að það verði afgreitt fljótlega á komandi vorþingi. Neytendastofa gefur út leiðbeiningar Neytendastofa hefur ákveðnar heimildir skv. gildandi regluverki til að bregðast við óréttmætum viðskiptaháttum, m.a. með því að leggja á sektir. Líkt og greint var frá á síðasta ári tók stofnunin ákvarðanir gagnvart fimm fyrirtækjum sem sinna bílastæðaþjónustu við gjaldskyld bílastæði. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að þau hefðu brotið gegn neytendalöggjöf með ýmsum hætti. Til að fylgja eftir þessum ákvörðunum, og í framhaldi af okkar vinnu, mun Neytendastofa í dag gefa út leiðbeiningar fyrir gjaldskyld bílastæði. Í leiðbeiningum koma fram þær kröfur sem Neytendastofa hefur sett fram í fyrri ákvörðunum sínum, auk leiðbeininga um önnur atriði, m.a. hvaða upplýsingar skuli veita og hvernig þær skulu veittar. Heildstætt regluverk til lengri tíma Ýmislegt fleira er í farvatninu varðandi tillögur til úrbóta. Í fyrsta lagi er ætlunin að búa til sérstaka heimasíðu þar sem fram kemur, á hverjum tíma, hvar á Íslandi gjaldskyld bílastæði er að finna, óháð því hvort þau eru í opinberri eigu eða einkaeigu, sem og upplýsingar um gjaldskylduna. Í öðru lagi verða gerðar auknar kröfur til innheimtufyrirtækja um að tilkynningar til bifreiðaeigenda um vangreiðslugjald birtist ekki eingöngu í heimabanka viðkomandi, án skýringa. Í þriðja lagi eru síðan í undirbúningi breyting á reglugerð um umferðamerki, sem er á forræði innviðaráðuneytisins, þar sem nánari og ítarlegri umfjöllun verður um P merki bílastæða. Hvað varðar heildstætt regluverk til lengri tíma þá horfum við til tveggja þátta, annars vegar til innheimtulaga og hins vegar til nýlegrar reglusetningar í Noregi og Danmörku á þessu sviði. Til skoðunar er að sett verði sérstök heildstæð reglugerð hér á landi, að norrænni fyrirmynd, um gjaldskyld bílastæði sem næði jafnt til einkaaðila og opinberra aðila. Slíkt yrði gert í samráði við innviðaráðuneytið þar sem reglugerðin yrði sett á grundvelli umferðarlaga. Í slíkri reglugerð kæmu fram heildstæðar kröfur til bílastæða og til fyrirtækja sem sjá um gjaldtöku á bílastæðum, þ.e. kröfur um upplýsingagjöf og merkingar, kröfur um fyrirkomulag innheimtu gjalda, kröfur til greiðslukerfa og kröfur um úrlausn ágreiningsefna. Nánari útfærsla á slíkri reglugerð er til frekari vinnslu og skoðunar innan atvinnuvegaráðuneytis, innviðaráðuneyti og Neytendastofu, og frekari tíðinda að vænta á næstunni. Lærum af reynslu nágrannaþjóða Öll miðar þessi vinna að bættum réttindum neytenda og skýrara regluverki. Ég tel okkur geta lært mikið af reynslu nágrannaþjóðanna í þessum efnum sem glíma að mörgu leyti við sömu vandamál og við varðandi að ná utan um þá öru þróun sem hefur átt sér stað á þessu sviði, út frá sjónvarhorni neytenda. Það er sannarlega jákvætt að fram komi íslensk hugbúnaðarfyrirtæki með lausnir og þjónustu varðandi innheimtu bílastæðagjalda og upplýsingagjöf til neytenda, og flytji jafnvel út þá þekkingu og hugvit. Það er aftur á móti mikilvægt að tryggja að slíkt sé gert innan þess ramma sem stjórnvöld setja með lögum, reglugerðum og leiðbeiningum, út frá hagsmunum neytenda. Aðkoma atvinnulífsins að málefninu er því mikilvæg og að sem mest samstaða sé um markmið, tilgang og nauðsyn aðgerðanna. Höfundur er atvinnuvegaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hanna Katrín Friðriksson Neytendur Bílastæði Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar