Játaði ást sína á Jenner Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. janúar 2026 11:59 Timothee og Kylie sæt saman. Hollywood-stjarnan Timothee Chalamet var valinn besti leikarinn á verðlaunahátíð bandarískra gagnrýnenda fyrir leik sinn í kvikmyndinni Marty Supreme og nýtti tækifærið til að játa ást sína á kærustu sinni, Kylie Jenner.
Chalamet er án efa ein stærsta stjarna Hollywood og hefur leikið í hverri stórmyndinni á fætur annarri: Dune (2021), Wonka (2023), Dune: Part Two (2024), A Complete Unknown (2024) og nú síðast Marty Supreme (2025) í leikstjórn Josh Safdie. Sjá einnig: „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Á sama tíma hefur Chalamet frá apríl 2023 myndað eitt heitasta par Hollywood með athafnakonunni Kylie Jenner. Parið hefur reynt að halda sambandinu utan sviðsljóssins og eru oft mikið í sundur vegna starfa beggja. Fyrir vikið hafa verið linnulausar sögusagnir um að sambandið sé að líða undir lok. Orðrómur um sambandsslitin varð sérstaklega háværar eftir að Chalamet mætti ekki í sjötugsafmæli móður Jenner, Kris Jenner, í nóvember á síðasta ári. Jenner var fljót að kveða það í kútinn með samfélagsmiðlahegðun sinni þar sem hún líkaði við tvær færslur hans. Parið hefur síðan sést ítrekað saman opinberlega, á rauða dreglinum og á verðlaunahátíðum. Þar á meðal í byrjun desember á síðasta ári þar sem þau mættu í stíl í appelsínugulu leðri. Þau voru síðan aftur mætt saman á verðlaunahátíð bandarískra gagnrýnenda, Critics Choice Awards, í gær þar sem Chalamet hlaut verðlaun sem besti leikarinn í aðalhlutverki fyrir leik sinn sem Marty Mauser í íþróttadramanu Marty Supreme. Leikarinn sýndi líka á sér nýja og einlægari hlið. Kylie Jenner og Timothee Chalamet saman í á Critics Choice í Palm Springs í gær.Getty Eftir að hafa kysst Kylie fór hann upp á svið, tók við verðlaununum og þakkaði fyrir sig. Þá hrósaði hann sérstaklega hinum leikurunum sem voru tilnefndir, Michael B. Jordan, Leonardo DiCaprio, Ethan Hawke, Joel Edgerton og Wagner Moura, áður en hann skilaði að lokum kveðju til kærustunnar. „Að lokum vill ég þakka maka mínum til þriggja ára. Þakka þér fyrir grunninn okkar. Ég gæti ekki gert þetta án þín. Ég elska þig frá dýpstu hjartarótum.“ Kylie sást þá segja „Ég elska þig,“ til baka úti í salnum. Hlusta má á ræðu Chalamet hér að neðan:
Bíó og sjónvarp Ástin og lífið Hollywood Bandaríkin Tengdar fréttir Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Ástin virðist enn blómstra hjá raunveruleikastjörnunni Kylie Jenner og Hollywood leikaranum Timothée Chalamet, þrátt fyrir háværar sögusagnir um að parið væri að hætta saman. 18. ágúst 2025 17:02 Mest lesið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Fleiri fréttir Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira
Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Ástin virðist enn blómstra hjá raunveruleikastjörnunni Kylie Jenner og Hollywood leikaranum Timothée Chalamet, þrátt fyrir háværar sögusagnir um að parið væri að hætta saman. 18. ágúst 2025 17:02