Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 29. desember 2025 23:05 Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Ívar Fannar Ýmsar gjalda- og skattahækkanir og aðrar breytingar taka gildi um áramótin, en fjármagnstekjuskattur vegna leigutekna gæti í ákveðnum tilfellum hækkað um tugi þúsunda á mánuði. Fjármálaráðherra vill meina að ríkisstjórnin hafi ekki hækkað skatta á „venjulegt vinnandi fólk“ og segir að áhrif á heimilin ættu ekki að vera mikil. Þá kveðst hann stoltastur af þeim breytingum sem gerðar voru á veiðigjaldinu í ár, af þeim breytingum sem gerðar hafa verið á sköttum og gjöldum á árinu.
Breytingar á lögum um veiðigjöld, afnám heimildar til samnýtingar skattþrepa sambýlisfólks, tilkoma kílómetragjaldsins og vörugjöld á bifreiðar eru meðal þeirra skatta- og gjaldabreytinga sem vakið hafa mikið umtal, en á móti verður bensín- og olíugjaldið til dæmis úr sögunni. En það er sitt hvað fleira sem breytist um áramótin. Skattur á leigutekjur úr 11% í 16,5% Til dæmis verða reglubundnar krónutöluhækkanir í takt við verðlagsþróun upp á 3,7% á gjöldum á áfengi og tóbak. Útvarpsgjaldið hækkar í sama hlutfalli um 800 krónur milli ára en það fer úr og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra hækkar um rúmar 520 krónur. Þá verður tekið hærra gjald sem skapar ýmsar aðrar aukatekjur fyrir ríkissjóð, til að mynda verður fimm þúsund krónum dýrara að sækja um nýtt vegabréf á næsta ári, og rúmum ellefu þúsund krónum dýrara að fá flýtimeðferð. Þá má nefna breytingar á fjármagnstekjuskatti vegna leigutekna sem hækkar úr 11% upp í 16,5%. Þannig mun til dæmis einstaklingur sem leigir út íbúðarhúsnæði fyrir 350 þúsund krónur á mánuði þurfa að greiða tæpar sextíu þúsund krónur þar af í skatt á næsta ári, samanborið við tæpar fjörutíu þúsund krónur á þessu ári. Það er hækkun sem nemur tæpum tuttugu þúsund krónum á mánuði, eða um 230 þúsund á ársgrundvelli. Sjá einnig: Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Dæmin hér að ofan eru ekki tæmandi listi yfir þær breytingar sem taka gildi um áramótin, en á vef stjórnarráðsins má til dæmis finna samantekt yfir helstu skattabreytingar sem taka gildi um áramót. Áhrifin ekki mikil að mati ráðherra Í aðdraganda kosninga sögðust núverandi stjórnarflokkar ekki ætla að hækka skatta á „vinnandi fólk.“ Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist aðspurður líta svo á að ríkisstjórnin hafi staðið við það loforð. „Við erum ekki að hækka skatta á venjulegt, vinnandi fólk og það er raunverulega þannig að hlutfall útgjalda ríkisins, sneiðin sem fer til ríkisins af þjóðarkökunni, hún stendur í stað á milli 2025 og 2026. Auðvitað er verið að gera ákveðnar breytingar á vörugjöldum og það er verið að innleiða kílómetragjald og auðvitað hefur það einhverja snertingu, en annars eru áhrifin ekki mikil,“ segir Daði Már. Stoltastur af veiðigjaldinu Hann segir erfitt að segja til um það nákvæmlega hversu miklu þær skattahækkanir og aðrar breytingar sem gerðar hafa verið muni skila sér í formi aukinna tekna til ríkissjóðs. Það verði tíminn að leiða betur í ljós enda þurfi að taka margar breytur með inn í reikninginn. „Það er alltaf erfitt að spá fyrir um það. Veiðigjöldin, þau fara eftir alls konar óvissu, bæði um rekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna og hversu mikið veiðist yfir höfuð sem er breytingum háð. Kílómetragjaldið fer eftir því hversu mikið er keyrt, en markmiðið með þeirri breytingu var ekki tekjuöflun heldur einfaldlega að skipta um kerfi. Síðan á eftir að koma í ljós hver bílasala verður á árinu, þannig það er ómögulegt að segja til um það á þessum tímapunkti,“ segir Daði. Hvað lýtur að þeim sköttum og gjöldum og breytingum sem tekið hafa gildi síðan þú tókst við, hverju ert þú stoltastur af? „Ég myndi nú segja að veiðigjaldið og leiðréttingin á því hafi skipt mestu máli, þó að það sé kannski meira atvinnuvegaráðherra heldur en ég. Það var orðið löngu tímabært, það var skringilega reiknað. Ég held að þetta sé mikilvæg breyting og ég held að þær eigi alls ekki eftir að sýna sig þær dómsdagsspár sem hafðar voru uppi. Ég held að þetta sé skynsamleg leið fyrir þjóðina til að njóta hluta af ágóðanum af auðlindinni sem hún á,“ svarar Daði.
Skattar, tollar og gjöld Fjármál heimilisins Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Kílómetragjald Breytingar á veiðigjöldum Leigumarkaður Bensín og olía Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Sjá meira