Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar 22. desember 2025 07:46 Svo virðist sem Guðmundur Ingi Kristinsson hafi ekki í hyggju að snúa aftur í mennta- og barnamálaráðuneytið, að minnsta kosti ekki í bráð. Því er nú rétti tíminn til að Ásthildur Lóa Þórsdóttir taki aftur við því.Ásthildur Lóa hraktist úr embætti vegna falsfréttar sem RÚV birti um samband hennar við mann sem var fullorðinn að lögum þegar barn þeirra kom undir, öfugt við það sem fréttastofa RÚV gaf til kynna. Auk þess fullyrti fréttastofan einnig, án þess að hafa nokkuð áreiðanlegt fyrir sér í því, að hún hefði verið í einhvers konar leiðtogastöðu gagnvart manninum.Því miður virtust forystukonur ríkisstjórnarinnar hafa misst sitt annars annálaða kúl, því þær leyfðu þrýstingnum af ósannindum RÚV að verða til þess að Ásthildur Lóa sagði af sér, sem var í sjálfu sér rétt ákvörðun hjá henni þegar hún hafði ekki þann stuðning sem hún þurfti.Það er langt síðan rykið settist, langt síðan almenningi varð ljóst að þarna var um að ræða svívirðilega aðför, og það af hálfu stofnunar í eigu almennings sem á að segja vandaðar fréttir en ekki fara með ósannindi um alvarleg mál. Því er nú tími til kominn að Ásthildur Lóa verði aftur gerð að ráðherra, til að sýna að ekki verði hægt að taka fólk niður með því að birta falsfréttir.Auðvitað ættu Kristrún, Þorgerður Katrín og Inga Sæland að lýsa yfir að þær hafi gert alvarleg mistök þegar þær leyfðu þessu að gerast á sínum tíma, og biðjast afsökunar á því.Samtímis væri við hæfi að Stefán Eiríksson útvarpsstjóri tilkynnti í væntanlegu ávarpi sínu á gamlarśdag að hann og Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri segðu af sér vegna ábyrgðar sinnar á þessum alvarlega falsfréttaflutningi. Höfundur er stærðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Barnamálaráðherra segir af sér Alþingi Einar Steingrímsson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Svo virðist sem Guðmundur Ingi Kristinsson hafi ekki í hyggju að snúa aftur í mennta- og barnamálaráðuneytið, að minnsta kosti ekki í bráð. Því er nú rétti tíminn til að Ásthildur Lóa Þórsdóttir taki aftur við því.Ásthildur Lóa hraktist úr embætti vegna falsfréttar sem RÚV birti um samband hennar við mann sem var fullorðinn að lögum þegar barn þeirra kom undir, öfugt við það sem fréttastofa RÚV gaf til kynna. Auk þess fullyrti fréttastofan einnig, án þess að hafa nokkuð áreiðanlegt fyrir sér í því, að hún hefði verið í einhvers konar leiðtogastöðu gagnvart manninum.Því miður virtust forystukonur ríkisstjórnarinnar hafa misst sitt annars annálaða kúl, því þær leyfðu þrýstingnum af ósannindum RÚV að verða til þess að Ásthildur Lóa sagði af sér, sem var í sjálfu sér rétt ákvörðun hjá henni þegar hún hafði ekki þann stuðning sem hún þurfti.Það er langt síðan rykið settist, langt síðan almenningi varð ljóst að þarna var um að ræða svívirðilega aðför, og það af hálfu stofnunar í eigu almennings sem á að segja vandaðar fréttir en ekki fara með ósannindi um alvarleg mál. Því er nú tími til kominn að Ásthildur Lóa verði aftur gerð að ráðherra, til að sýna að ekki verði hægt að taka fólk niður með því að birta falsfréttir.Auðvitað ættu Kristrún, Þorgerður Katrín og Inga Sæland að lýsa yfir að þær hafi gert alvarleg mistök þegar þær leyfðu þessu að gerast á sínum tíma, og biðjast afsökunar á því.Samtímis væri við hæfi að Stefán Eiríksson útvarpsstjóri tilkynnti í væntanlegu ávarpi sínu á gamlarśdag að hann og Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri segðu af sér vegna ábyrgðar sinnar á þessum alvarlega falsfréttaflutningi. Höfundur er stærðfræðingur.
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar