Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. desember 2025 18:51 Kjartan Magnússon segir íbúa sakna þess að hafa lögreglustöð í Breiðholti. Vísir Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur aftur lagt fram tillögu um stofnun hverfislögreglustöðvar í Breiðholti. Hann segir ákall íbúa eftir slíkri stöð verða sífellt háværari.
Tillaga Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um stofnun hverfislögreglustöðvar í Breiðholti var lögð fyrir á fundi borgarstjórnar í vikunni en afgreiðslu málsins frestað. Málinu hefur verið frestað síendurtekið en Kjartan hefur lagt tillöguna fram nokkrum sinnum. „Tillagan var lögð fram í haust og afgreiðslunni hefur ítrekað verið frestað. Það hefur verið erfitt að koma málum á dagskrá borgarstjórnarfunda,“ segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hverfislögreglustöð var lengi vel í Breiðholti en var lokað árið 2009 vegna skipulagsbreytinga. „Íbúum hefur fundist þetta svo mikil afturför, þeir hafa ítrekað kallað eftir þessu, það berast kvartanir yfir því að lögreglan sé stundum mjög lengi að bregðast við þegar verða útköll í hverfinu.“ Telur betra að hafa lögregluþjóna í hverfunum Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu hefur sagt við þessum tillögum Kjartans að betri mönnun skipti mun meira máli en fjöldi lögreglustöðva. „Ég er alveg sammála lögreglunni í því að það sé ástæða til að fjölga lögregluþjónum og mér skilst nú að það sé að einhverju leyti verið að gera það. Síðan er þetta spurning um vinnuskipulag,“ segir Kjartan. „Er betra að hafa lögreglumennina starfandi á örfáum stórum stöðvum eða setja þá meira út í hverfin í nafni samfélagslöggæslu? Ég held að það væri betra. Í sjálfu sér þyrfti þetta ekki að vera kostnaðarauki fyrir lögregluna ef að borgin myndi útvega húsnæði eins og hún gerði á sínum tíma.“
Reykjavík Borgarstjórn Lögreglan Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira