Kostnaður við tónleika útskýri hátt miðaverð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. desember 2025 15:22 Tónleikar Bubba Morthens verða 5. og 6. júní næsta sumar. Vísir Ísleifur Þórhallsson hjá Senu segir gríðarlega dýrt að halda tónleika hér á landi sem útskýri miðverð að stórum hluta. Nokkur umræða hefur skapast um stórtónleika Bubba Morthens sem haldnir verða í Laugardalshöll í sumar og þykir sumum miðinn nokkuð dýr. Ódýrasti miðinn á tónleikana kostar 15 þúsund krónur en sá dýrasti 40 þúsund krónur.
Ísleifur, sem kemur ekkert nálægt tónleikum Bubba, er einn reyndasti tónleikahaldari landsins og hann var kallaður til í Bítinu á Bylgjunni í morgun til að ræða þessi mál og hann bendir á að verðlag á Íslandi sé almennt mjög hátt. „Á þessum tónleikum Bubba þá er bilið mjög breitt. Við höfum verið að gera það og allir tónleikahaldarar að bjóða upp á mjög breitt bil. Það má hafa það í huga að þetta er í gömlu höllinni svo ég reikna með að það séu standandi á gólfinu og sitjandi í stúkunni. Þetta eru hátt í fimm þúsund miðar og þar af eru bara í boði um 1600-1700 sæti. Þannig að þetta er mjög takmörkuð auðlind, ofsalega fá sæti í boði og við erum að tala um tónleika þar sem öll sætin eru seld,“ segir Ísleifur Þórhallsson hjá Senu. Raunar seldist upp á tónleikana á augabragði svo ákveðið var að halda tvenna tónleika. Þá tekur Ísleifur fram að framboð á tónleikum erlendra listamanna hafi minnkað gríðarlega eftir Covid-faraldurinn. „Ég var að hugsa til baka eftir Covid, hvað við höfum farið oft í stórtónleika og inn í Höllina. Það eru eiginlega bara tvennir tónleikar. Það eru Backstreet boys og Smashing Pumpkins. Það er af sem áður var. Það er af því að kostnaður hefur hækkað svo svakalega.“
Tónleikar á Íslandi Reykjavík Tónlist Neytendur Bítið Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira