„Ein leiðin að gera hann nógu fúlan til að heimta að fá að fara“ Sindri Sverrisson skrifar 2. desember 2025 08:30 Mohamed Salah var á ókunnum slóðum, á varamannabekknum í leiknum gegn West Ham á sunnudag. Getty/Justin Setterfield Arnar Gunnlaugsson og Adda Baldursdóttir segja allt útlit fyrir að eitthvað meira en þörf á hvíld liggi að baki því að Mohamed Salah var á varamannabekk Liverpool allan leikinn í sigrinum á West Ham í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Salah var síðast á varamannabekk Liverpool í deildarleik í apríl 2024 en Arne Slot sagði í viðtali eftir leik að hann hefði viljað veita Egyptanum hvíld. „Þá hefði hann getað hvílt einhverja fleiri,“ sagði Arnar í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport en brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Sunnudagsmessan - Salah á bekknum „Ef þú ert að hvíla hann, viltu þá ekki að hann tikki inn tuttugu mínútum í svona leik? Þetta vekur aðeins meiri spurningar en bara það að hann hafi verið hvíldur,“ sagði Adda. Salah er orðinn 33 ára og hefur aðeins skorað fjögur mörk í úrvalsdeildinni á leiktíðinni, eftir stórkostlegt tímabil í fyrra. „Þeir vita alveg að þeir geta fengið fullt af peningum fyrir hann í janúar, frá liðum í ónefndri heimsálfu. Hann er búinn að vera hræðilegur, en ekki bara hann því það er ósanngjarnt að taka hann út fyrir sviga og tala um hann sem veika hlekkinn. Það er fullt af leikmönnum búnir að vera ekki upp á sitt besta. En ef það er tækifæri til að selja hann, fá mikið af peningum til að endurfjárfesta – ég tek fram að ég er ekki þar núna – þá er ein leiðin að gera hann nógu fúlan til að heimta að fá að fara,“ sagði Arnar og rifjaði upp þegar Salah var fúll út í Jürgen Klopp fyrir að fá ekki að spila meira í leik gegn West Ham: „Það var akkúrat á þessum velli fyrir tveimur árum, þegar Klopp var með liðið, og þá var mikið gert úr þeirra líkamstjáningu á hliðarlínunni. Þetta er leikmaður sem þolir ekki að vera á bekknum. Ef þeir vilja láta hann fara þá er þetta góð leið til að gera hann styggan,“ sagði Arnar. „Þetta væri annað ef að hann væri búinn að vera að spila vel og það væri talað um að hann þyrfti að setjast á bekkinn til að hvíla. En hann er búinn að vera að spila illa og það er búin að vera pressa á að hann sé bekkjaður. Þetta vekur upp fleiri spurningar,“ sagði Adda.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira