Bandaríkjaher, upphaf og innleiðing vatnsúðakerfa Snæbjörn R Rafnsson skrifar 26. nóvember 2025 11:31 Upphaf og innleiðing vatnsúðakerfa hérlendis byrjaði upp úr seinna stríði þegar að bandaríkjaher kom sér fyrir á vellinum árið 1941. Vatnsúðakerfi (sprinklerkerfi) voru fyrst fundin upp í Bandaríkjunum. Þeir í vestrinu lögðu grunninn að sjálfvirkum vatnsúðakerfum, sem urðu lykiltækni í brunavörnum Íslendingar voru fengnir í framkvæmdir bandaríkjahers og gerði bandaríkjaher kröfu um vatnsúðakerfi í sínum byggingum . Íslendingar lærðu af þeim og nýtttu sér þeirra reynslu til innleiðingar regluverks. Regluverkið Árið 1982 eru settar á reglugerðir á Islandi sem áttu að tryggja að vatnsveitur ráði við að fæða vatnsúðakerfi.Árið 1992 eru svo mótaðar reglugerðir um sjálfvrik brunakerfi, ákveðin vakning í gangi. Árið 1993 eru gerðar leiðbeiningar um hvernig eigi að standa að eftirliti og prófunum vatnsúðakerfa, svo hægt sé að standa rétt að rekstri vatnsúðakerfa.Í framhaldi af þessum leiðbeiningum, þá var farið yfir 74 uppsett vatnsúðakerfi á höfuðborgasvæðinu, í 62 byggingum, til að sjá hvernig almennt ástand væri á vatnsúðakerfum. Aðeins eitt þessara kerfa virkaði sem skildi, sem var ákeðið áfall og vakning um að nauðsynlegt væri að hafa opinbert eftirlit og skráningu yfir þjónustu kerfanna. Sú þjónustugátt var innleidd 20 árum síðar. Árið 1994 er hugað að reglum er koma að hönnun og uppsetningu sjálfvirkra vatnsúðakerfa, samræmt hvað hönnuðir skal horfa á og fylgja. Í þessum reglum er horft til og vísað í breska staðalinn BS 5306 og ameríska staðalinn NFPA13. Árið 1997 eru settar kröfur í skipulags og byggingarlög og árið 1998 í byggingareglugerð, þar sem gerðar eru kröfur um brunahönnun mannvirkja. Þar eru sett viðmið-kröfur um hvað skal verja, áhættumat, þar sem mannvirki eru m.a. flokkuð, þar má nefna hluti eins og mannfjöldi, verðmæti innviða og fl. Þar eru kröfur um að ef húsnæði er lagerhúsnæði yfir 2000m2 þá skal það varið með vatnsúsðakerfi. Þar kemur einnig fram að ef gerðar eru breytingar á húsnæði, þá skal sú breyting fara fyrir byggingafulltrúa og eldvarnareftirlit, sem þá getur gert athugsemdir ef þörf er á vatnsúðakerfi. Árið 2006 voru gerðir staðlar og gátlistar við leiðbeiningar frá 1993. Þessir staðlar og gátlistar voru svo uppfærðir árið 2010. Árið 2013 er svo þjónustugátt yfir vatnsúðakerfi á höfuðborgarsvæðinu innleidd, sem minnst var á hér að ofan eftir að 1 af 74 kerfum virkaði ekki, þarna árið 1993. Þjónustugáttin er gagnagrunnur sem slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á laggirnar, gagnagrunnurinn heldur utan um öll vatnúðakerfin á höfuðborgarsvæðinu. Hann var gerður virkur með samvinnu við þjónustuaðila kerfanna, sem eru löggiltir pípulagnameistarar sem hafa þekkingu og réttindi til að þjónusta vatnsúðakerfin. Þannig var náð utanum öll vatnúðakerfi höfuðborgarsvæðisins, sem mörg voru munaðarlaus, frábært starf unnið þarna. Þar kom í ljós að vel yfir 200 varðlokar-kerfi voru á höfuðborgasvæðinu. Og að 6 þjónustuaðilar höfðu umsjón með um 80% kerfanna, 20 þjónustuaðilar voru með um 20% kerfanna. Mistökin (eitt dæmi) Sjö ár eru liðin frá stórbrunanum í Miðhrauni 4 Garðabæ, apríl 2018. Þar sem þetta c.a. 3400m2 húsnæði varð ónýtt, hundruðum milljóna tjón. Í húsnæðinu voru m.a. geymslur sem leigðar voru til fólks. Ekkert vatnsúðakerfi var í húsnæðinu. Miðhraun 4 var endurbyggt og endurhannað árið 2021, með vatnsúðakerfi, sem alltaf hefði átt að vera m.v. þá starfsemi sem þar var. Mikil umræða fór af stað vegna þess, m.a. um vatnsúðakerfi, tilurð þeirra og tilgang, af hverju, hvaða reglur gilda, hver er reynslan. Vatnsúðakerfi í Miðhrauni 4 hefði skipt sköpun. Í Bandaríkjunum hefur reynslan sýnt að í 90% tilfella ráða vatnúðakerfi við bruna og slökkva þá í fæðingu. Í 70% tilfella þarf aðeins 4 vatnsúðara til þess að slökkva eldin. Ný brunavarnaráætlun fyrir starfssvæði höfuðborgarsvæðið var undirrituð 31.10.2025, til næstu 5 ára, sem kemur m.a. inná úrbætur og eftirlit. Lærum af sögunni. Höfundur smíðar, tekur út og þjónustar vatnsúðakerfi, tæknifræðingur og löggiltur pípulagnameistari Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ónýtt dekk undir rándýrum bíl Kristján Ra. Kristjánsson Skoðun Mamma fékk fjórar milljónir fyrir að eignast þig í apríl Guðfinna Kristín Björnsdóttir Skoðun Kemur málinu ekki við Inga Sæland Skoðun Kæru samborgarar, ég er ástæðan fyrir mögulegum skertum lífsgæðum ykkar Andri Valgeirsson Skoðun Fimm áherslur sem hafa bætt lífsgæði Kópavogsbúa Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson Skoðun Móttökudeildir: Brú til þátttöku – ekki aðskilnaður Friðþjófur Helgi Karlsson Skoðun Réttindi allra að tala íslensku Hrafn Splidt Skoðun Góð samviska er gulli betri Árni Sigurðsson Skoðun Opin eða lokuð landamæri? Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Rangfærslur sveitarfélaga um réttindi fatlaðs fólks Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kæru samborgarar, ég er ástæðan fyrir mögulegum skertum lífsgæðum ykkar Andri Valgeirsson skrifar Skoðun Setjum velferð barna og ungmenna í forgang og sameinumst um bætta lýðheilsu María Heimisdóttir,Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur sveitarfélaga um réttindi fatlaðs fólks Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Sameinumst í að enda stafrænt ofbeldi gegn fötluðum konum Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Áskoranir í iðnnámi Íslendinga! Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Opin eða lokuð landamæri? Pétur Björgvin Sveinsson skrifar Skoðun Góð samviska er gulli betri Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Móttökudeildir: Brú til þátttöku – ekki aðskilnaður Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Fimm áherslur sem hafa bætt lífsgæði Kópavogsbúa Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar Skoðun Réttindi allra að tala íslensku Hrafn Splidt skrifar Skoðun Tryggjum öryggi eldri borgara Sigurður Ágúst Sigurðsson skrifar Skoðun Bætt stjórnsýsla fyrir framhaldsskólana Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Ónýtt dekk undir rándýrum bíl Kristján Ra. Kristjánsson skrifar Skoðun Kemur málinu ekki við Inga Sæland skrifar Skoðun Mótum framtíðina með sterku skólakerfi Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Erum ekki mætt í biðsal elliáranna Ragnheiður K. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Jákvæð áhrif millilandaflugs til Akureyrar eru miklu meiri en þú heldur Lára Halldóra Eiríksdóttir skrifar Skoðun Fögnum degi sjúkraliða og störfum þeirra alla daga Alma D. Möller skrifar Skoðun Þegar stórútgerðin gleypir allt – er kominn tími á norskar lausnir? Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Óstaðsettir í hús Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins hefur bætt hag aldraðra og öryrkja Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Láttu ekki svindla á þér við jólainnkaupin Inga María Backman skrifar Skoðun Duga aðgerðir ríkistjórnarinnar til að rífa fjölda eldri borgara úr fátæktargildrunni? Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Túlkun gagna er ábyrgð Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Lífsstílshljómkviðan: öndun í köldum potti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Brunavarir, vatnsúðakerfi – Upphaf, innleiðing og mistökin Snæbjörn R Rafnsson skrifar Skoðun Sameinumst í að enda stafrænt ofbeldi gegn fötluðum konum Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Er munur á trú og trúarbrögðum? Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hvaða einkennir góðan stjórnmálamann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samstarf og samhæfing á breiðum grunni þjóðaröryggis Víðir Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Kæru samborgarar, ég er ástæðan fyrir mögulegum skertum lífsgæðum ykkar Andri Valgeirsson skrifar
Skoðun Setjum velferð barna og ungmenna í forgang og sameinumst um bætta lýðheilsu María Heimisdóttir,Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Fimm áherslur sem hafa bætt lífsgæði Kópavogsbúa Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar
Skoðun Jákvæð áhrif millilandaflugs til Akureyrar eru miklu meiri en þú heldur Lára Halldóra Eiríksdóttir skrifar
Skoðun Þegar stórútgerðin gleypir allt – er kominn tími á norskar lausnir? Kjartan Sveinsson skrifar
Skoðun Duga aðgerðir ríkistjórnarinnar til að rífa fjölda eldri borgara úr fátæktargildrunni? Björn Snæbjörnsson skrifar