Skortir lækna í Breiðholti Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. nóvember 2025 08:45 Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Ívar Fannar Heimilislækna skortir á Heilsugæslustöðinni í Efra-Breiðholti. Yfirmaður hjá heilsugæslunni segir íbúa ekki þurfa að örvænta vegna málsins, þjónusta við íbúa verði tryggð. Málið sé hinsvegar lýsandi fyrir stöðuna á landsvísu, hún hvetur lækna til að sækja um.
Það voru íbúar í Breiðholti sem vöktu máls á stöðunni í íbúahópi á Facebook. Heilsugæslustöðin er staðsett í Hraunbergi í Fella- og Hólahverfi. Þar er þess getið að einungis væri einn læknir eftir starfandi á stöðinni og að íbúar hefðu fengið þær upplýsingar á heilsugæslustöðinni. Fimm læknar eru skráðir starfandi á stöðinni á vef heilsugæslunnar. Óskar eftir liðsinni „Þetta er rétt, okkur vantar að styrkja mönnunina í efra Breiðholtinu, sérstaklega læknamönnun,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í samtali við Vísi. Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri var á leið í flug og átti því ekki kost á að veita viðtal vegna málsins. „Ef einhver er þarna úti sem er að hlusta væri kærkomið að fá liðsinni. Þetta er frábær heilsugæslustöð í hverfi sem er alveg áskorun að sinna vel og við viljum sinna því vel. Það er mjög gefandi að vinna þarna og frábært starf sem þarna fer fram en við gætum vel bætt við okkur góðum lækni.“ Ragnheiður tekur fram að stöðin sé annars vel mönnuð af öðru fagfólki: Hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, félagsráðgjöfum og sjúkraþjálfurum. „Þetta er mjög gott fagfólk og fólk fær góða þjónustu en við erum aðeins að klastra með læknisþjónustu.“ Svipuð staða Forsvarsmenn heilsugæslunnar hafa áður viðrað áhyggjur sínar af mönnun lækna, síðast í samtali við fréttastofu í janúar 2024. Ragnheiður segir stöðuna svipaða nú og þá. „Vonandi fer staðan að lagast en þetta er svo sem staðan heilt yfir Heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu og öllu landinu. Það er læknaskortur, því miður. Það vantar fleiri heimilislækna og þá geta komið upp svona stöður á einni og einni stöð.“ Ragnheiður segir að það sé hinsvegar ýmislegt til ráða til að tryggja Breiðhyltingum þjónustu. „Við höfum fengið lánaða lækna frá öðrum stöðvum til að hjálpa. Svo ef það næst ekki þyrftum við að fá að vísa skjólstæðingum á aðrar stöðvar. Þetta er millibilsástand.“
Reykjavík Heilsugæsla Heilbrigðismál Tengdar fréttir Löng bið eftir lækni og dæmi um að fólk fái ekki tíma Dæmi eru um að ekki sé hægt að bóka tíma hjá lækni á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir skort á fagfólki hjá stofnuninni og mikið álag. 8. janúar 2024 20:01 Aðeins helmingur íbúa með fastan heimilislækni þvert gegn stefnu stjórnvalda Þrátt fyrir að heilbrigðisyfirvöld stefni að því að landsmenn séu með fastan skráðan heimilislækni á það aðeins við um helming íbúa á höfuðborgarasvæðinu. Ástæðan er skortur á heimilislæknum að sögn formanns félags þeirra. Það hafi áhrif á aðgengi og gæði þjónustunnar. Heilsugæslan sé í raun verr stödd en Landspítalinn. 8. janúar 2024 13:58 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira
Löng bið eftir lækni og dæmi um að fólk fái ekki tíma Dæmi eru um að ekki sé hægt að bóka tíma hjá lækni á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir skort á fagfólki hjá stofnuninni og mikið álag. 8. janúar 2024 20:01
Aðeins helmingur íbúa með fastan heimilislækni þvert gegn stefnu stjórnvalda Þrátt fyrir að heilbrigðisyfirvöld stefni að því að landsmenn séu með fastan skráðan heimilislækni á það aðeins við um helming íbúa á höfuðborgarasvæðinu. Ástæðan er skortur á heimilislæknum að sögn formanns félags þeirra. Það hafi áhrif á aðgengi og gæði þjónustunnar. Heilsugæslan sé í raun verr stödd en Landspítalinn. 8. janúar 2024 13:58