Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. nóvember 2025 22:34 Cole Palmer er kominn með einkaleyfi á „Cold Palmer“ Joe Prior/Visionhaus via Getty Images Cole Palmer er greinilega umvafinn öflugu teymi lögfræðinga því hann er búinn að gera nánast allt sem tengist nafni hans eða ímynd að vörumerki. Þar með talið fagnið fræga, þar sem hann hjúfrar sér um axlir til að hlífa sér frá kulda.
Palmer gerði fyrst „Cold Palmer“ gælunafnið að vörumerki og færði svo út í kvíarnar, hann gerði nafn sitt „Cole Palmer“ og skammstöfunina „CP“ að vörumerki og einnig ímyndarrétt tengdan andliti hans, en hann þykir frekar sérkennilegur í fasi. Þá er fagnið sem hann hefur gert frægt orðið að vörumerki. Palmer sendi inn stutt myndskeið til að sýna hvernig fagnið er framkvæmt. Myndskeiðið hefur ekki verið gert opinbert en aðdáendur ensku úrvalsdeildarinnar hafa séð fagnið þónokkuð oft undanfarin ár. Cole Palmer er yfirleitt kalt þegar hann skorar. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Palmer fékk leyfi fyrir flestöllu sem hann sótti um, þar með talið fagninu, en fékk ekki leyfi til þess að framleiða vín undir Palmer nafninu því það brýtur gegn höfundarrétti frönsku vínekrunnar Chateau Palmer, sem tengist leikmanninum ekki neitt. Hann má þó framleiða aðra áfenga drykki, gos, orkudrykki eða hvað annað undir nafninu „Cold Palmer.“ Þetta þýðir líka ekki að hann einn megi framkvæma fagnið fræga. Aðrir leikmenn mega alveg láta eins og þeim sé kalt þegar þeir skora, en þeir mega ekki taka myndir af sér í svona fagnaðarlátum og selja á fatnaði eða í auglýsingar.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira