„Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2025 10:32 Benjamin Sesko fagnar öðru tveggja marka sinna fyrir Manchester United. epa/PETER POWELL Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að gagnrýni Garys Neville, fyrrverandi fyrirliða liðsins, hafi haft áhrif á slóvenska framherjann Benjamin Sesko.
United keypti Sesko frá RB Leipzig fyrir tæplega 74 milljónir punda í sumar. Hann hefur skorað tvö mörk í fyrstu ellefu leikjum sínum fyrir Rauðu djöflana og að mati Nevilles hefur hann ekki farið illa af stað í samanburði við Bryan Mbeumo og Matheus Cunha sem komu einnig til United fyrir tímabilið. Amorim segir að ýmislegt sé til í gagnrýni Nevilles en mikilvægt sé að horfa á stóra samhengið. Sesko sé ungur og reynslulítill og sé enn að aðlagast nýrri deild. „Ég er rólegur en ekki hann,“ sagði Amorim á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Tottenham í dag. „Ég veit hvernig hlutirnir eru í fótbolta og hann mun basla. Það er eðlilegt. Hann er ekki með neina reynslu héðan. Fyrst segja allir að þú sért svo góður, næsta stjarna og þú heyrðir það um Sesko. Síðan kemurðu til félags þar sem er erfitt að spila. Ef þú stendur þig ekki í hverri viku færðu gagnrýni frá goðsögnum félagsins, álitsgjöfum og fjölmiðlum og stundum á hún rétt á sér.“ Amorim hefur fulla trú á að Sesko komist á beinu brautina eftir byrjunarörðugleika. „Auðvitað vill enginn heyra að þú hafir átt í vandræðum en það er satt í hans tilfelli. Tökum utan um það. Það er erfitt að heyra það en þetta er ekki persónulegt. Þetta er skoðun sem breytist eftir þrjár vikur. Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur,“ sagði Amorim. United er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sautján stig eftir tíu leiki, jafn mörg og Tottenham sem er í 6. sætinu. Leikur Tottenham og Manchester United hefst klukkan 12:30 og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira