Hverjar eru hinar raunverulegu afætur? Karl Héðinn Kristjánsson skrifar 4. nóvember 2025 11:00 Í Grafarvogi býr ungt par með tvö lítil börn. Þau vinna bæði fulla vinnu, greiða skatta og gera allt „rétt“ samkvæmt bókinni. Í fimm ár hafa þau reynt að safna fyrir útborgun í íbúð. En á meðan leiguverð hefur hækkað langt umfram laun og vextir étið upp allt umframfé, færist draumurinn um öruggt heimili alltaf lengra í burtu. Þau horfa á ávöxtinn af erfiði sínu renna beint í vasa bankanna og leigufélaganna sem tilkynna á sama tíma um metgróða. Þau eru að gefast upp. Þetta er ekki tilviljun. Leikreglurnar eru skrifaðar af hinum ríku, fyrir hina ríku. Markmiðið er einfalt: Að þín vinna skapi auð þeirra. Í opinberri umræðu á Íslandi er vinnandi fólki kerfisbundið talin trú um að það eigi að líta niður á náungann. Okkur er sagt að reiðast bótaþeganum, fyrirlíta innflytjandann og óttast flóttamanninn. Þessum hópum er stillt upp sem „afætum“ á samfélaginu. Þetta er markviss og hættuleg blekking, hönnuð til að beina athygli okkar frá hinum raunverulegu afætum; þeim sem raunverulega sölsa undir sig verðmætin sem vinnandi fólk skapar. Á meðan við erum hvött til að skammast út í nágranna okkar sem þiggur örorkubætur, birtast fréttir sem afhjúpa raunverulegt eðli kerfisins. Fyrirsagnirnar segja sína sögu: „Meira en 70 milljarða hagnaður bankanna“. Já, þið lásuð rétt. Á fyrstu níu mánuðum ársins söfnuðu þrír stærstu viðskiptabankarnir – Landsbankinn, Arion banki og Íslandsbanki – samanlagt yfir 73 milljörðum króna í hreinan hagnað. Landsbankinn hagnaðist um 29,5 milljarða, Arion banki um 24,4 milljarða og Íslandsbanki um 19,3 milljarða. Samt er okkur sagt að þau kljáist við „erfitt rekstrarumhverfi“ sem réttlæti hærri þjónustugjöld og komi í veg fyrir vaxtalækkanir. Þetta er sama tuggan og hjá matvörurisunum. Hagar skila milljörðum í hagnaði en segjast samt tilneydd til að hækka matvælaverð. Græðgi þeirra er okkar tap. Þetta eru ekki peningar sem urðu til úr lausu lofti. Það sem er kallaður hagnaður bankanna er tap þjóðarinnar. Þetta er hagnaður sem er sogaður út úr íslensku efnahagslífi með okurvöxtum, fáránlegum þjónustugjöldum og fjármálabraski. Á sama tíma og venjulegar fjölskyldur berjast við að greiða af verðtryggðum lánum fagna bankastjórar „góðri afkomu“. Fyrir hvern er þetta hagkerfi eiginlega? Lygin um innflytjendur og bótaþega En þegar endar ná ekki saman á stórum hluta heimila landsins og grunnþjónustan gefur sig, hverjum er þá kennt um? Innflytjendum. Staðreyndirnar segja aðra sögu. Atvinnuþátttaka innflytjenda á Íslandi er um 89%, sem er hærra hlutfall en hjá innfæddum, sem er um 84%. Innflytjendur eru nú um fjórðungur vinnuafls á Íslandi og gegna lykilhlutverki í undirstöðuatvinnugreinum. Þeir greiða skatta og gjöld í samneysluna, en búa sjálfir oft við verri kjör, lægri laun og mun meira óöryggi á húsnæðismarkaði þar sem leiguverð og afborganir rjúka upp úr öllu valdi. Að mála þá upp sem vandamál er ekkert annað en ósvífin tilraun til að etja hópum vinnandi fólks saman. Sama gildir um bótaþega. Á meðan fjármagnseigendur stinga milljörðum í vasann þreytist þeim ekki að ræða um meint „bótasvindl“ eins og það sé stærsta ógnin við ríkissjóð. Þótt hver einasta króna í bótasvindli sé of mikið blikna þær upphæðir í samanburði við þann gríðarlega auð sem hinir ríku sanka að sér. Skattaundanskot og húsnæðismarkaður afæta – Glæpir hinna ríku Ef við viljum tala um raunverulegt svindl, tölum þá um skattaundanskot auðmanna, sem metið hefur verið á tugi milljarða árlega. Eða tölum um húsnæðismarkaðinn. Sjálfur faðir kapítalismans, Adam Smith, lýsti þessu arðráni fullkomlega fyrir nærri 250 árum þegar hann skrifaði: „Þegar allt land í ríki er komið í einkaeigu, elska landeigendur... að uppskera þar sem þeir sáðu aldrei.“ Sú greining hefur fáu sinnum átt betur við en í dag. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala leiguverðs hækkað um 11,5%, á meðan verðbólgan mældist 4,8%. Leiguverð hefur því hækkað meira en tvöfalt á við almennt verðlag. Þetta er bein afleiðing markaðar sem þjónar hagsmunum fárra leigufélaga og fjárfesta á beinan kostnað heimila í landinu. Hættum að sparka niður á við. Reiði okkar á að beinast upp á við. Flóttamaðurinn ræður ekki vöxtunum.Öryrkinn stillir ekki leiguverði.Það eru bankarnir, fjárfestarnir og leigufélögin sem halda vinnandi fólki í fjárhagslegri ánauð. Raunverulegu afæturnar eru ekki þau sem kerfið svíkur, heldur þau sem það þjónar. Það er fjármagnselítan sem lifir á vinnu annarra. Látum ekki etja okkur gegn hvert öðru. Barátta okkar er sameiginleg: gegn kerfi sem er hannað til að færa verðmæti frá þeim sem vinna fyrir þeim, til þeirra sem aðhafast ekkert en fleyta rjómann af vinnu annarra. Við krefjumst þess að vinnandi fólk fái sanngjarnan skerf af þeim gríðarlegu verðmætum sem það skapar. Skattarnir sem við greiðum eiga að tryggja okkur öfluga og gjaldfrjálsa grunnþjónustu, ekki hverfa ofan í vasa verktaka eða einkarekinna sjóða. Fjármunirnir eru til staðar. Þeir myndu skila sér ef fjármagnseigendur greiddu aðeins jafn háan skatt og venjulegt launafólk. Þess vegna krefjumst við kerfisbreytinga. Við krefjumst húsnæðis- og fjármálakerfis sem þjónar almenningi fyrst. Kerfis þar sem auðmenn mæta afgangi, ekki öfugt. Heimildir: Árshlutareikningar Landsbanka, Arion banka og Íslandsbanka fyrir 3. ársfjórðung 2025. Ársuppgjör Haga hf. fyrir rekstrarárið 2023/24. Gögn um vinnumarkað frá Hagstofu Íslands og Vinnumálastofnun (haust 2024). Gögn um leiguverð og vísitölu neysluverðs frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Hagstofu Íslands (desember 2024). Adam Smith (1776), Auðlegð þjóðanna. Höfundur er ritari framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karl Héðinn Kristjánsson Mest lesið Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar