Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 1. nóvember 2025 12:30 Eigendur Tango Travel. Þór Bæring Ólafsson, Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir og Bragi Hinrik Magnússon. Aðsend Einn eigandi ferðaskrifstofunnar Tango Travel segist vera í áfalli eftir að fyrirtækið þurfti að hætta starfsemi vegna áhrifa af gjaldþroti Play. Hann er ósáttur við reglugerð um Ferðamálastofu og telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið. „
Við erum í áfalli, þetta var barnið okkar, við erum búin að byggja þetta upp í nokkur ár og byggjum öll á tuttugu ára reynslu í ferðabransanum,“ segir Bragi Hinrik Magnússon, einn eiganda ferðaskrifstofunnar Tango Travel. Starfsmenn fyrirtækisins sem eru jafnframt eigendur þess eru þrír. Velta fyrirtækisins á þessu ári nam um 900 milljónum. Í tilkynningu í morgun kom fram að Tango Travel hefði hætt starfsemi í núverandi mynd vegna áhrifa sem gjaldþrot flugfélagsins Play hafði á starfsemina. Bragi segir að tímasetning gjaldþrotsins hafi verið afskaplega óheppileg fyrir þau. „Við vorum með mikið af fólki úti á okkar vegum. Það kostaði sitt að koma þeim heim og bóka dýr flug í gegnum alls konar krókaleiðir til að koma fólki heim og auka hótelkostnaður eins og allar ferðaskrifstofur í rauninni lentu í. Okkar óheppni var líka sú að þremur dögum eftir fall Play vorum við með bókað út tæplega þúsund manns í flugvélum frá þeim.“ Bragi segir fjölda farþega eiga bókaðar ferðir með ferðaskrifstofunni, alveg fram á næsta haust. Þau hafi sjálf greitt fyrir hótel og staðfestingarkostnað sem ekki fæst endurgreiddur. „Við þurfum samt að standa okkar plygt gagnvart okkar kúnnum,“ segir Bragi. Of knappur tími Sé ferð með ferðaskrifstofu aflýst hefur ferðaskrifstofan að sögn Barga fjórtán daga til að endurgreiða viðskiptavinum sínum. Hann telur það of knappan tíma. „Á bankareikningi hjá okkur eru nokkrir tugir milljóna sem við erum búin að safna upp sem er handveðsettur Ferðamálastofu. Til þess að verja hagsmuni okkar viðskiptavina, til að geta losað þennan pening sem við eigum, þá er sú galna regla hjá Ferðamálastofu að við verðum að loka starfsemi til þess að geta losað þennan pening og endurgreiða viðskiptavinum okkar,“ segir Bragi. „Við vorum bara með frábæra verkefnastöðu fram í tímann en að þurfa punga út öllum þessum milljónum í endurgreiðslur á fjórtán dögum er ógerlegt og óréttlátt.“ Þar sem fjöldi ferðaskrifstofna séu í álíka vandræðum hefði verið skynsamlegra að leysa málið með Ferðamálastofu og ráðuneytinu. Þau hafi til dæmis lagt til að þau fengju peninginn lánaðan til að endurgreiða viðskiptavinunum og síðan farið í afborgunarferli í nokkur ár. „Þannig hefði verið hægt að taka þennan skafl og dreifa úr honum. Þá hefðum við getað haldið áfram rekstri og aðrar ferðaskrifstofur sem hafa sagt upp fólki og veðsett húsin sín og framtíð barnanna sinna til að reyna að bjarga einhverju sem er ekki þeim að kenna.“ Viðskiptavinir þurfa nú að leita til Ferðamálastofu til þess að fá endurgreitt fyrir ferðirnar sínar. „Til þess að fá greitt úr þessum tryggingum sem við erum búin að safna upp á bankareikning. Ef það fer fram úr því þá er ferðatryggingasjóður þar á bak við sem ætti að grípa ef það dugir ekki til. Fólk getur fengið nánari upplýsingar hjá Ferðamálastofu með hvernig það virkar.“
Ferðalög Ferðaþjónusta Gjaldþrot Play Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira