Komu höndum yfir fæðingarvottorðið og ljóstruðu upp um fæðinguna Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. október 2025 11:47 Alba Baptista og Chris Evans á Óskarsverðlaununum í vor. Þau eru nú orðin foreldrar. Getty Bandaríski leikarinn Chris Evans, þekktastur fyrir að leika ofurhetjuna Kaftein Ameríku, og eiginkona hans, portúgalska leikkonan Alba Baptista, eru orðnir foreldrar. Þau hafa reynt að halda sambandi sínu utan sviðsljóssins en fjölmiðlum áskotnaðist fæðingarvottorð nýfæddrar stúlkunnar.
Dægurmiðillinn TMZ greindi fyrst frá fregnunum eftir að hafa haft upp á fæðingarvottorði stúlkunnar Alma Grace Baptista Evans sem fæddist föstudaginn 24. október í Massachussets. Alba og Chris vilja ekki básúna persónulegu lífi sínu.Getty Lítið hefur farið fyrir sambandi Evans, sem er 44 ára, og hinni 28 ára Baptista en þau kynntust fyrst í Evrópu árið 2021. Fyrstu fregnir af sambandinu bárust svo í byrjun árs 2022. Eftir um tveggja ára samband giftu þau sig við hátíðlega athöfn í Cape Cod í Massachusetts 9. september 2023. Sögusagnir um óléttuna hafa gengið frá því í sumar þegar aðdáendasíða fyrir parið birti Instagram-færslu á feðradaginn og taggaði feður þeirra Ölbu og Chris í færslunni. Luiz Baptista, faðir Ölbu, gerði sér ekki grein fyrir því að um óopinbera aðdáendasíðu væri að ræða og skrifaði: „Kærar þakkir elsku Chris. Þinn tími er að koma! 🥰“ Hvorki Evans né Baptista hafa tjáð sig opinberlega um fregnirnar.
Barnalán Bandaríkin Portúgal Hollywood Tengdar fréttir Þetta er kynþokkafyllsti maður í heimi Leikarinn Chris Evans er kynþokkafyllsti núlifandi karlmaður heims, samkvæmt bandaríska tímaritinu People. Tímaritið veitir þennan áhugaverða titil á hverju ári og tekur Evans við keflinu af leikaranum Paul Rudd. 8. nóvember 2022 11:30 Mest lesið Fannst látinn á fjöllum degi eftir afmælisdaginn Lífið Stjörnulífið: „Ekkert nýársheit í ár því það sem ég er að gera virkar greinilega“ Lífið Játaði ást sína á Jenner Bíó og sjónvarp „Á bak við fíkn er alltaf áfallasaga“ Lífið Kraftaverkaaðgerð batt enda á fimm ár af sársauka Lífið Óútskýrð ráðgáta í Havana endurvakti fjandskap Kúbu og Bandaríkjanna Lífið Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Lífið Víkingar fengu son í jólagjöf Lífið Morð og missir, kraftaverk, hjónaskilnaðir og Forrest Gump Áskorun Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Óttast að kvikmyndahús endi eins og djassklúbbar Játaði ást sína á Jenner Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Fyrsta stiklan úr Íslandsstórvirki Nolan mætt á netið Wire-stjarna látin langt fyrir aldur fram Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Framhald af Napóleonsskjölunum í vinnslu Enginn Óskar til Íslands 2026 Bestu myndir Robs Reiner Dick van Dyke á hundrað ára afmæli Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Nágrannar kveðja endanlega í dag Lawrence og Hutcherson snúa aftur í Hungurleikana Ósáttur við framhaldið: „Skildu ekki hvað gerði þá fyrstu sérstaka“ „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sjá meira
Þetta er kynþokkafyllsti maður í heimi Leikarinn Chris Evans er kynþokkafyllsti núlifandi karlmaður heims, samkvæmt bandaríska tímaritinu People. Tímaritið veitir þennan áhugaverða titil á hverju ári og tekur Evans við keflinu af leikaranum Paul Rudd. 8. nóvember 2022 11:30