Stjórn Warner Bros. segir félagið til sölu Samúel Karl Ólason skrifar 21. október 2025 14:11 Unnið er að því að skipta Warner Bros. Discovery upp í tvö félög en stjórnin segist tilbúin til að selja félagið í heild. Nokkrir aðilar hafi lýst yfir áhuga á slíkum kaupum. EPA/CHRISTOPH DERNBACH Forsvarsmenn Warner Bros. Discovery segjast nú tilbúnir til að selja fyrirtækið í heild sinni. Áður höfðu þeir stefnt að því að skipta fyrirtækinu í tvennt en eftir að hafa fengið veður af áhugasömum kaupendum hafa þeir skipt um skoðun. Hlutabréf fyrirtækisins hafa hækkað töluvert í virði eftir tilkynninguna í dag.
WBD rekur sjónvarpsstöðvar eins og CNN, TNT HBO og fleiri auk þess sem það rekur kvikmyndatökuvör og streymisveituna HBO Max, svo eitthvað sé nefnt. Meðal þeirra fyrirtækja sem eru sögð hafa áhuga á WBD eru Paramount Skydance, Netflix og Comcast, samkvæmt heimildum CNBC. Í síðustu viku bárust fregnir af því að stjórnendur Paramount Skydance hafi reynt að sameina félagið við WBD en án árangurs. Sá samruni myndi skapa eitt stærsta og öflugasta skemmtanaafurðafyrirtæki heims. Sjá einnig: Paramount ber víurnar í Warner Bros CNBC hefur eftir heimildarmönnum sínum að forsvarsmenn WBD hafi ákveðið að tilkynna opinberlega að þeir hefðu áhuga á því að selja fyrirtækið og að áhugi á kaupum komi úr nokkrum áttum, eftir að þeir höfnuðu nokkrum tilboðum frá Paramount. Eitt tilboð sem barst frá öðrum aðila var hærra en hæsta tilboð Paramount og vonast stjórnendur WBD að forsvarsmenn Paramount hækki tilboðið. Eftir að Warner Bros. og Discovery Inc. sameinuðust árið 2022 hefur fyrirtækið verið í kröggum, vegna umfangsmikilla skulda vegna sameiningarinnar. Verulega hefur verið dregið úr kostnaði og hjá félaginu og hefur tekist að lækka skuldir töluvert. Fjárfestar eru þó sagðir hafa áhyggjur af stöðunni vegna slæmrar stöðu sumra sjónvarpsstöðva félagsins. Eins og áður segir stóð til að skipta félaginu upp milli kvikmyndavera þess og streymisveitu annars vegar og sjónvarpsstöðva hins vegar. Þar yrði markmiðið, samkvæmt frétt New York Times, að skilja arðvæna hluta félagsins frá stöðvum eins og TNT og CNN sem erfitt er að reka með hagnaði þessa dagana. Í yfirlýsingu frá stjórn WBD segir að þessi vinna sé enn í gangi en til greina komi að selja félagið í heild sinni til þeirra sem hafa áhuga. Kaupi enginn félagið í heild stendur til að ljúka aðskilnaðinum um mitt næsta ár. Að öðru leyti segir stjórnin að enginn tímarammi um mögulega sölu liggi fyrir.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira