Í örugga höfn! Örlygur Hnefill Örlygsson og Bergur Elías Ágústsson skrifa 10. október 2025 15:01 Eldsnemma á sólríkum morgni leggur skip að höfn á Húsavík. Þetta er ekki risaskip. Þetta skip er passlegt fyrir lítinn bæ eins og okkar. Um borð er 250 farþegar sem taka daginn snemma. Það er margt að sjá og skoða. Einhver rölta í Hvalasafnið, önnur í verslunina Ísfell. Sum byrja daginn í Sjóböðunum og einhver fara á RIB bát með Gentle Giants til að komast í návígi við hina stórkostlegu hvali Skjálfandaflóa. Flest koma þau við í handverkshúsinu Kaðlín áður en dagurinn er liðinn, því þau vilja koma heim með handverk sem hin mannlega hönd hefur ofið og segir í fínum þráðum sínum margra kynslóða sögu svæðisins. Hver gestur hefur í lok dags lagt um 28 þúsund krónur inn í hagkerfi Húsavíkur, samkvæmt efnahagsgreiningu Rannsóknamiðstöðvar ferðamála. Það munar um minna. Hringferðir skemmtiferðaskipa eru ein af burðarstoðum ferðaþjónustu um allt land. Þessar komur styrkja innviði sem nýtast svo öðru ferðafólki, en ekki síður því fólki sem byggir strandlengju Íslands. Skipakomur efla alla byggð. Gestir skipanna greiða sig inn í náttúruböð, fara í verslanir og handverksbrugghús. Þau nota apótek og pósthús. Þau fara í söfn. Gestirnir eru í sinni eigin landkönnun að leita að sögu til að segja sínu fólki þegar þau koma aftur heim, og sögurnar finna þau í þorpum og bæjum og í fólkinu sem tekur á móti þeim. Þessir gestir ætluðu aldrei að fljúga til Íslands. Þau höfðu ekki skoðað hótel og bílaleigubíl en svo ákveðið að fara í siglingu. Nei - þau höfðu fyrir löngu valið sitt skipafélag, og þau bókuðu Íslandsferðina líklega um borð í öðru skipi sama félags fyrir 2 árum síðan. Þetta er þeirra ferðamáti, þeirra lífsstíll. Svona virkar þessi hluti ferðaþjónustunnar. Gestir skipanna skilja mikið eftir sig í staðbundnum hagkerfum. Fyrir hafnarsjóði og sveitarfélög skipta tekjur af þessum skipum miklu máli. Þessir gestir setja lítið álag á viðkvæmt vegakerfi landsins, enda ferðast þau oftast saman í hóp á rútu í stað þeirra 20-30 bíla sem þyrfti til að keyra sama fjölda að Dettifossi, í Ásbyrgi, eða að Mývatni. Þetta er ákveðin tegund ferðaþjónustu sem er okkur mikilvæg og skilur mikið eftir. Undir lok síðasta árs setti þáverandi ríkisstjórn í gang stórfelldar skattkerfisbreytingar sem ógna þessari verðmætu stoð ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónusta á að leggja vel til samfélagsins - um það er ekki deilt - en breytingar sem gerðar eru á skattkerfum þarf að útfærðar með fyrirsjáanleika og vega þarf alla þætti. Róttækar skattahækkanir án fyrirvara hafa áður haft alvarlegar afleiðingar í löndum sem við berum okkur saman við. Í Alaska var ráðist í stórfelldar hækkanir á gjöldum á skemmtiferðaskip. Niðurstaðan varð áfall: skipafélög fluttu skip sín annað og tekjur hrundu. Þetta sama ástand er nú að verða hér. Það tók 10 ár að vinna markaðinn til baka og tekjuaukinn sem átti að ná skilaði sér aldrei í kassann og sama verður upp á teningum á Íslandi. Markaðinn þurfti Alaska að vinna til baka með ærnum tilkostnaði og sú verður einnig raunin hér. Þetta er heimatilbúið vandamál ofan í önnur áföll sem nú dynja yfir ferðaþjónustuna. Á Húsavík og Raufarhöfn höfum við undanfarið unnið markvisst starf í að sækja viðskipti frá skipafélögum sem hafa raunhæfa umhverfisstefnu sem þau fylgja eftir. Við höfum horft til skipafélaga sem vilja skipta beint við staðbundna þjónustuaðila. Við erum að sækjast eftir viðskiptum við félög sem deila okkar sýn á samfélagið. Við hafnir okkar starfar fólk með mikla reynslu og þekkingu sem tekur á móti skipunum af fagmennsku og með bros á vör. Mikið er lagt í öryggismál, miðlun upplýsinga og vandaða upplifun gesta. Fyrirsjáanleiki í gjaldtöku og skattlagningu er lykilatriði þess að við byggjum þessa grein upp. Fyrri ríkisstjórn setti sitt skip á fulla ferð frá Íslandi, og með algjöru skilningsleysi á greininni kom sú stjórn okkur langt út á ballarhaf. Ef við viljum halda áfram að njóta þeirra verðmæta sem skemmtiferðaskip færa landsbyggðunum, verðum við að tryggja skynsamlega og sanngjarna skattheimtu. Við skorum á núverandi ríkisstjórn að koma þessum málum aftur í örugga höfn. Örlygur Hnefill Örlygsson, markaðsstjóri Hafna Norðurþings Bergur Elías Ágústsson, rekstrarstjóri Hafna Norðurþings Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Norðurþing Skemmtiferðaskip á Íslandi Hafnarmál Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar