Taívanir vilja reisa varnarhjúp gegn Kína Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. október 2025 07:47 William Lai tók við forsetaembættinu í fyrra. Getty/Annabelle Chih Stjórnvöld í Taívan hyggjast reisa loftvarnahjúp til að vernda landið gegn utanaðkomandi ógnum. Þetta tilkynnti William Lai, forseti Taívan, degi eftir að stjórnvöld vöruðu við því að Kínverjar ynnu að því að auka getu sína til að ráðast á landið.
Stjórnvöld í Kína líta í Taívan sem hluta af Kína og hafa ekki útilokað að beita valdi til að ná aftur stjórn þar. Kínverjar hafa í auknum mæli farið inn í landhelgi Taívan, meðal annars við heræfingar þar sem líkt hefur verið eftir mögulegri innrás. Varnarviðbrögð eru hins vegar umdeild í Taívan, þar sem andstæðingar Lai hafa meðal annars sakað hann um að ýta undir ótta við innrás til að auka við sig stuðning. Þessi hópur hefur talað fyrir viðræðum við Kína, í stað stigmögnunar. Varnarmálaráðuneyti Taívan hefur hins vegar varað við því að Kínverjar gætu mögulega beitt þeirri taktík að umbreyta „heræfingum“ skyndilega í innrás, til að koma Taívönum að óvörum. Lai sagði í morgun að stjórnvöld hygðust auka framlög til varnarmála í þrjú prósent á næsta ári og í fimm prósent fyrir árið 2030. Þetta gæti hins vegar reynst erfitt, þar sem þingið hefur þegar hafnað nokkrum frumvörpum um auknar fjárveitingar það sem af er ári. Reuters hefur eftir heimildarmönnum að stjórnvöld í Taívan sjái fyrir sér varnarhjúp í líkingu við þann sem skýlir Ísrael og getur skotið niður margs konar skammdræg vopn. Sérfræðingar segja slíkan hjúp hins vegar myndu kosta verulega fjármuni og taka langan tíma að koma upp.
Taívan Kína Suður-Kínahaf Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira