Flottustu mörkin hjá Newcastle og Arsenal: Snilld Bergkamps og þrumufleygur Tiotés Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2025 15:32 Mörg frábær mörk hafa litið dagsins ljós í leikjum Newcastle United og Arsenal. vísir/getty Newcastle United fær Arsenal í heimsókn í lokaleik 6. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn. Mörg glæsileg mörk hafa verið skoruð í viðureignum þessara liða í gegnum tíðina.
Newcastle hefur farið nokkuð rólega af stað í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og aðeins unnið einn leik. Arsenal hefur aftur á móti náð í tíu stig af fimmtán mögulegum. Frá því enska úrvalsdeildin var sett á laggirnar tímabilið 1992-93 hafa Newcastle og Arsenal mæst sextíu sinnum. Skytturnar hafa unnið 36 leiki, Skjórarnir þrettán og ellefu sinnum hefur orðið jafntefli. Eitt frægasta mark í sögu ensku úrvalsdeildarinnar kom í leik þessara liða á St James' Park 2. mars 2002. Dennis Bergkamp sneri þá á ótrúlegan hátt á Nikos Dabizas og lagði boltann svo framhjá Shay Given í marki Newcastle. Þá gleyma stuðningsmenn Newcastle þrumuskoti Cheicks Tioté heitins í leik gegn Arsenal 5. febrúar 2011. Þetta var eina mark Tiotés fyrir Newcastle en með því jafnaði hann í 4-4. Arsenal komst í 0-4 en Newcastle jafnaði eftir eina svakalegustu endurkomu í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Klippa: Tíu flottustu mörkin úr leikjum Newcastle og Arsenal Þetta eru bara tvö af þeim fjölmörgu glæsimörkum sem hafa verið skoruð í leikjum Newcastle og Arsenal. Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá tíu flottustu mörkin sem skoruð hafa verið í viðureignum liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Leikur Newcastle og Arsenal hefst klukkan 15:30 á sunnudaginn og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Mest lesið Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Fótbolti Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Handbolti Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Enski boltinn Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti Berglind Katla fer í skóla í New York Körfubolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira
Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti
Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti