Grealish valinn leikmaður mánaðarins í fyrsta sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. september 2025 14:45 Þrátt fyrir að hafa aðeins verið hjá Everton í nokkrar vikur hafa stuðningsmenn liðsins tekið ástfóstri við Jack Grealish. getty/Dan Istitene Jack Grealish hefur farið vel af stað með Everton og var útnefndur leikmaður ágúst-mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.
Everton fékk Grealish á láni frá Manchester City út tímabilið. Hann kom inn á sem varamaður í fyrsta leik Everton í ensku úrvalsdeildinni en hefur byrjað síðustu tvo leiki og lagt upp tvö mörk í þeim báðum. Enginn leikmaður hefur gefið fleiri stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni það sem af er tímabili. Þetta er í fyrsta sinn sem Grealish er valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Hann er jafnframt fyrsti leikmaður Everton sem hlýtur þessa nafnbót síðan Dominic Calvert-Lewin var valinn leikmaður september-mánaðar 2020. Grealish skoraði aðeins eitt mark og gaf eina stoðsendingu í 33 deildarleikjum á síðasta tímabili og átti ekki fast sæti í byrjunarliði City. Manchester-liðið keypti hann frá Aston Villa fyrir hundrað milljónir punda 2021. Grealish, sem varð þrítugur á miðvikudaginn, hefur alls leikið 193 leiki í ensku úrvalsdeildinni, skorað 27 mörk og gefið 32 stoðendingar. Everton tapaði fyrir Leeds United, 1-0, í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni en hefur síðan unnið tvo leiki í röð, gegn Brighton og Wolves. Everton tekur á móti Aston Villa á Hill Dickinson vellinum klukkan 14:00 á morgun. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport 2.
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Hemmi og Óskar hita upp í beinni Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira