Við lifum ekki á tíma fasisma Hjörvar Sigurðsson skrifar 18. ágúst 2025 13:02 Svo það vefjist ekki fyrir þeim sem þjást af svarthvítum hugsunarhætti þá skal það hér með sagt að höfundur er ekki stuðningsmaður Trump og fordæmir skilyrðislaust allt ofbeldi gegn saklausum einstaklingum, þar með talið Palestínubúum á Gaza. Á undanförnum árum hefur víða um hinn vestræna heim átt sér stað sú óhugnanlega þróun að gripið er í síauknum mæli til gífuryrða til að lýsa því sem lýsandi mislíkar. Fasismi, ásamt rasisma, eru þau gífuryrði sem mér hefur þótt algengust meðal þeirra til hverra þróunin hefur náð. Ég reyni eftir bestu getu að gera ráð fyrir að fólk segi það sem það segir og geri það sem það gerir á heiðarlegum og jákvæðum forsendum með hag alls samfélagsins að leiðarljósi. Verð ég því að ganga út frá því að höfundur skoðanapistils sem birtist hér á Vísi 13. ágúst hafi tjáð sig á grundvelli misskilnings eða fáfræði en ekki með það að leiðarljósi að stuðla að samfélagslegri fordæmingu á málefnalegum, gildum og eðlilegum sjónarmiðum stórs hluta samfélagsins. Höfundur fyrrnefndrar greinar fullyrðir að í Ísrael ríki fasismi. Þetta er bersýnilega rangt, en Ísrael er frjálst lýðræðisríki með almennan kosningarétt þar sem réttindi einstaklingsins gagnvart ríkinu er varin í stjórnarskrá[1]. Einstaklingum er frjálst að breyta á grundvelli eigin hagsmuna og hvata svo lengi sem það stangast ekki á við lög, en lögin eru samin af kjörnum fulltrúum fólksins. Sér til fróðleiks er lesandi hvattur til að bera saman stjórnskipan í Ísrael við stjórnskipan í Gaza. Sömuleiðis fullyrðir höfundur fyrrnefndrar greinar að í Rússlandi ríki fasismi. Aftur er þetta rangt en þó ekki eins bersýnilega og í tilfelli Ísraels þar sem að Rússland er ekki frjálst ríki né heldur lýðræðisríki nema þá mögulega í nafni. Í Rússlandi ríkir einvaldur og einkennist þjóðfélagið af forræðishyggju ríkisins, sérstakri birtingarmynd þjóðernishyggju sem nær meðal annars til þeirra sem í augum alþjóðasamfélagsins teljast til annara þjóða, misbeitingu Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í þágu ríkisins, og menningarlegri speglun gagnvart vesturlöndum. Fasismi, hins vegar, jafngildir ekki forræðishyggju. Fasismi jafngildir ekki einræði. Fasismi jafngildir ekki þjóðernishyggju. Né heldur jafngildir fasismi blöndu þessara atriða. Fasismi er vel skilgreint hugtak sem vísar til þeirrar hugmyndafræði sem var ríkjandi á Ítalíu undir einvaldinum Benito Mussolini upp úr öðrum áratugi tuttugustu aldarinnar og hangir saman við hugmyndarfræðilegan bakgrunn þess tíma[2]. Fasismi, eins og allar stefnur í sögu hugmynda í Evrópu og víðar, kemur til í sögulegu og félagslegu samhengi en ekki í tómarúmi, og er ógerningur að slíta stefnuna úr því samhengi — félagshyggju Marx, heimspeki Hegel, "goðsagnahyggju“ Sorel o.s.frv. Einkennist fasismi af öfgafyllri þjóðernishyggju sem skipar Þjóðinni guðdómlegan sess í þjóðarsálinni. Allt innan samfélagsins skal hafa það markmið að efla Þjóðina. Einstaklingar eru bundnir saman blóðböndum Þjóðarinnar og skulu haga sér á grundvelli hagsmuna hennar umfram allt. Þeir sem tilheyra ekki þessum blóðböndum eru síðri og hafa ekkert tilkall til Þjóðarinnar, þ.e. hvorki til ríkisins né þjóðfélagsins almennt. Þjóðernishyggja af þeim toga sem einkenndi fasismann og nasismann er frábrugðin þeirri þjóðernishyggju sem við höfum séð í hinum vestræna heimi síðan — ekki bara megindlega heldur eigindlega. Það er þessi sértæki eiginleiki fasisma og nasisma sem var forsenda — meðal, að sjálfsögðu, annara samfélagslegra, sagnfræðilegra, hagfræðilegra, heimspekilegra, og trúarlegra þátta — þeirra hörmunga sem þessar stefnur leiddu yfir heiminn á sínum tíma. Hvers vegna skiptir þetta máli? Jú, þetta skiptir máli vegna þess að misnotkun hugtaka hefur á undanförnum árum spilað stóran þátt í þeirri skautun sem hefur í síauknum mæli einkennt vestræn samfélög og hefur stuðlað að einmitt þeirri stöðu sem höfundur fyrrnefndrar greinar gagnrýnir. Þegar þú bregst við afstöðu annarra með því að líkja henni við hugmyndafræði sem að við sem samfélag höfum sammælst um að sé óforsvaranleg, og í raun holdgerving illsku, skipar þú viðmælenda þinn í hóp öfgamanna og neitar honum þátttöku í málefnalegum skoðanaskiptum á samfélagslegum vettvangi. Þá er fátt eftir fyrir hann en að snúa baki við þér og stunda skoðanaskipti á öðrum, skuggalegri vettvangi þar sem raunveruleg öfga-hugmyndafræði þrífst. Er hann þá líklegri til að sannfærast af málflutningi öfgamanna, en þar með hefur þú framleitt nýjan meðlim þeirrar fylkingar sem þú segist berjast gegn. Einnig skiptir þetta máli vegna þess að með því að misnota hugtök á þennan máta til þess að lýsa neyðarástandi sem eins brýn þörf er á að leysa og staðan í, t.d., Gaza um þessar mundir þá þvælist þú fyrir og hindrar að það takist. Með því að boða einhliða, svarthvíta og öfgakennda sýn á eins flókið málefni og ástandið í Ísrael-Palestínu þá útilokar þú að stór hópur fólks, sem brennur ekki síður en þú sjálf fyrir því að binda enda á blóðsúthellingarnar og koma á frið, geti unnið með þér í því verkefni. Með því að stimpla Trump sem fasista þá lokar þú fyrir möguleikann á því að ræða málefnalega það í hans fari og ákvörðunartöku sem kallar raunverulega á umræðu og jafnvel fordæmingu. Við lifum vissulega, að mati höfundar, á tíma vaxandi forræðishyggju og popúlisma þar sem vísbendingar eru til staðar um að lýðræðisríki standa hallandi fæti á meðan einræðisríki virðast vera í sókn — að draga fram fasisma fortíðarinnar kemur í veg fyrir að við getum snúið bökum saman og veitt þessari ljótu þróun þá mótspyrnu sem hún verðskuldar. Enn fremur skiptir þetta máli vegna þess að þegar þú líkir saman eins alvarlegu hugtaki og fasisma við ástandið í, t.d., Bandaríkjunum í dag þá gerir þú lítið úr fasisma og stuðlar að gjaldfellingu hugtaksins hvað sagnfræðilegt notagildi þess varðar. Þú býður fólki engan valkost, hyggst það ekki hundsa málflutning þinn, nema skilja fasisma sem vægara hugtak en það raunverulega er — „ef allt er fasismi, er þá ekki fasismi bara allt í lagi?“ Að lokum skiptir þetta máli vegna þess að með því að halda svona löguðu fram þá stuðlar þú að þeirri upplýsingaóreiðu sem einkennir samtíma okkar í síauknum mæli. Fólk sem kann að fylgjast lítið með, eða kafar ekki dýpra ofan í málin en svo að láta fyrirsagnir duga, gæti komið til með að trúa því að fasismi — þessi hryllingur sem það man eftir að læra um í skólanum — sé snúinn aftur. Hefur þetta í kjölfarið áhrif á ákvörðunartöku þeirra þegar kemur að samfélagslegum og pólitískum málefnum. Aftur stuðlar þetta svo að skautun og popúlisma. Hér skal það skýrt sagt: koma þessa þríeykis — marxisma, fasisma og nasisma — er með skelfilegustu stefum í langri sögu hugmynda og hugmyndafræði og leiddu til dauða vel yfir hundrað milljón manns. Að líkja Bandaríkjunum árið 2025, einu frjálsasta lýðræðisríki sögunnar, við fasisma — að líkja flutning heimilislausra á götum Washington D.C. í húsnæði utan höfuðborgarinnar við dauðabúðir nasismans þar sem um milljón manns voru myrtir — er í besta falli fáfræði og í versta falli siðlaus svívirðing gagnvart minningu þessara einstaklinga. Höfundur er áhugamaður um hugmyndir og hugtök. [1] Þó frábrugðin að vissu leiti því sem við þekkjum á Íslandi; sjá uncodified constitution. [2] Einnig má færa rök fyrir því að nasismi Þýskalands undir Adolf Hitler sé form af fasisma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 06.06.26. Halldór Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Skoðun Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun