Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 31. júlí 2025 10:22 Kristján Loftsson hefur ekki svarað viðtalsbeiðnum fréttastofu. Vísir/Vilhelm Hvalur hf. hyggst höfða mál á hendur ríkinu til viðurkenningar bótaskyldu vegna þess tjóns sem félagið telur sig hafa beðið vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur, þáverandi matvælaráðherra, um að stöðva hvalveiðar tímabundið sumarið 2023.
Viðskiptablaðið greinir frá því að þetta hafi komið fram í ársreikningi félagsins fyrir rekstrarárið 2024 en fréttastofu hefur ekki tekist að koma höndum á ársreikninginn og Kristján Loftsson hefur ekki látið í sig ná. Í umfjöllun Viðskiptablaðsins kemur fram að ársreikningur Hvals hf. votti um að félagið hafi verið rekið með 224 milljóna króna tapi á síðasta rekstrarári, sem nær yfir tímabilið 1. október 2023 tuk 30. september 2024. Það er veruleg breyting frá fyrri rekstrarárum en á síðasta ári nam hagnaður félagsins tæplega 3,5 milljörðum. Í ársreikningnum komi einnig fram að Hvalur hafi áður óskað eftir viðræðum við ríkið um uppgjör fjárbóta en þær ekki leitt til niðurstöðu og ríkið ekki fallist á bótaskyld. Félagið byggi á að ákvörðunin hafi verið andstæð lögum og vísar því til stuðnings til álits umboðsmanns Alþingis, þar sem fram kom að frestun upphafs hvalveiða hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum um hvalveiðar. Þá segi einnig að tilteknir einstaklingar hyggist höfða mál gagnvart öðrum sem eins er ástatt um til greiðslu á vangoldnum launum vegna hvalavertíðar 2023. Um sé að ræða „prófmál“ og hlutaðeigendur líti svo á að komið hafi verið á bindandi ráðningarsamband og þeir eigi rétt á fullum vertíðarlaunum en því mótmælir Hvalur. Verði launakröfurnar samþykktar gætu þær numið verulegum fjárhæðum sem yrðu þá mögulega til hækkunar fjárhæðar bótakröfunnar á hendur ríkinu. Enginn sparnaður hafi verið í formi launakostnaðar á meðan bannið var í gildi
Hvalveiðar Dómsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Sjávarútvegur Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira