Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2025 11:32 Íslenska nítján ára landsliðið er þegar búið að tryggja sig inn á næsta heimsmeistaramót. @hsi_iceland Íslenska nítján ára landslið kvenna í handbolta missti af tækifærinu til að spila um níunda sætið á Evrópumóti U19 eftir fimm marka tap á móti Serbíu í dag.
Serbarnir unnu leikinn 29-24 og spila um níunda sætið á mótinu. Íslensku stelpurnar spila í staðinn um þrettánda sætið. Þetta var fyrsta umferð í baráttunni um níunda til sextánda sætið á mótinu. Góður sigur í leiknum á undan hafði tryggt íslenska liðinu þátttökurétt á næsta heimsmeistaramóti sem fer fram næsta sumar. Íslensku stelpurnar voru þremur mörkum undir í hálfleik, 14-11, og Serbarnir bættu við forystu sína í seinni hálfleiknum sem þær unnu 15-13. Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir náði ekki alveg að fylgja á eftir átján marka leik sínum á móti Norður Makedóníu og klikkaði á þremur af fjórum skotum sínum í fyrri hálfleiknum. Ásthildur náði skrekknum úr sér í hálfleik og skoraði fjögur mörk í seinni hálfleiknum og þar með fimm mörk samtals. Ásthildur varð markahæst ásamt Dagmar Guðrúnu Pálsdóttur sem skoruðu báðar fimm mörk. Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir voru með þrjú mörk hvor. Íslenska liðið hefur þar með unnið tvo leiki og tapað fjórum á mótinu til þessa.
Handbolti Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold Fótbolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn Fleiri fréttir Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Sjá meira