Leik lokið: England - Wales 6-1 | England flaug áfram Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. júlí 2025 18:30 Englendingar fagna í kvöld. vísir/getty England tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum á EM er liðið vann öruggan sigur á Wales. England var með sama stigafjölda og Holland fyrir leikinn en þó með betri markatölu. Liðið þurfti því sigur til þess að gulltryggja farseðilinn í átta liða úrslitin. Þær voru heldur betur til í það því staðan í hálfleik var 4-0 og dagskránni í raun lokið. Nokkrum mörkum var bætt við í seinni hálfleik og stórsigur Englands staðreynd. England mætir Svíum í átta liða úrslitunum. EM 2025 í Sviss