„Miklar áhyggjur að EBU haldi áfram að lifa tvöföldu siðgæði“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 1. júlí 2025 13:01 Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV. vísir/EPA Samband evrópskra sjónvarpsstöðva EBU kemur saman í London á fimmtudag og föstudag á aðalfundi þar sem þátttaka Ísrael í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður meðal annars til umræðu. Stjórnarformaður Ríkisútvarpsins segir ólíðandi að söngvakeppnin sé notuð í pólitísku áróðursstríði og að ekkert réttlæti þátttöku Ísraels.
Stefán Jón Hafstein stjórnarformaður Ríkisútvarpsins birti skoðanagrein á Vísi í dag þar sem vera Ísrael í söngvakeppninni er gagnrýnd harðlega. Þar greinir hann frá því að stjórn RÚV hafi beint þeim tilmælum til Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra að ef komi fram tillaga á komandi fundi EBU um að vísa ísraelska ríkisútvarpinu úr keppninni skuli RÚV styðja slíka tillögu. Málflutningur EBU óskiljanlegur Stefán Jón segist hafa miklar áhyggjur af því að EBU taki málið vettlingatökum. „Ég hef miklar áhyggjur að EBU haldi áfram að lifa tvöföldu siðgæði. Við getum látið okkar samstarfsmenn í EBU vita af þessari afstöðu og það hefur verið gert að vissu marki og verður áframhaldið í þeim efnum.“ Hann hvetur EBU til að taka málið alvarlega. „Ég hef ekki skilið þeirra málflutning eins og hann hefur verið mótsagnakenndur að undanförnu. Ég ætlast bara til þess að menn geri hreint fyrir sínum dyrum á þessari samkomu núna í London í vikunni. Ég tek fram að ég tala ekki fyrir hönd stjórnar Ríkisútvarpsins í þessu máli,“ segir Stefán í samtali við fréttastofu. Ekki viss að það verði leyfð kosning Þú villt að RÚV kjósi með því að Ísrael verði meinuð þátttaka að Eurovision? „Ég er ekki viss um að það verði leyfð kosning.“ En getur RÚV lagt fram sína eigin tillögu þess efnis? „Ég er ekki viss um að það sé hægt formlega á þessum vettvangi. Ég þekki það ekki. Satt að segja þegar ég les dagskrá EBU fundarins þá er mér ekki alveg ljóst hvernig þessi umræða á að fara fram. Það er ein inngangsræða og svo pallborðsumræður. Það er ekki sagt hverjir verða í pallborðinu og svo framvegis. Og hvað á að gerast nákvæmlega er ekki alveg ljóst.“ Ekkert réttlæti áróður og þátttöku Ísraels Hann segir EBU hafa sett skýrt fordæmi þegar að Rússlandi var vísað úr keppni árið 2022. Að hans mati sé ljóst að ekki það sama eigi við um stríð á evrópskri grundu og fyrir botnið Miðjarðarhafs. „Að sönnu eru þetta ekki algjörlega sambærileg átök þessara tveggja stríðandi þjóða. En sársauki fórnarlambanna í Úkraínu og Palestínu er gjörsamlega sambærilegur og við eigum ekki að líða svona framkomu gagnvart saklausum borgurum. Hvorki í Úkraínu né á Gasasvæðinu.“ Hann segir það ólíðandi að Evrópska söngvakeppnin sé notuð í pólitísku skyni. „Þjáningarnar eru framdar og búnar til af miklu offorsi Ísraelsstjórnar, sem notar síðan söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva til að upphefja sig. Notar hana í pólitísku áróðurstríði sínu. Það þýðir ekkert að hengja sig á það að Ísraelska ríkisútvarpið standi að þessari söngvakeppni. Stjórn Ísraels hefur notað keppnina í áróðursskyni á mjög nakinn hátt,“ segir hann. „Núna þurfa samtök evrópskra sjónvarpsstöðva að endurskoða afstöðu sína frá því fyrir tveimur árum að leyfa Ísrael að vera með. Vegna þess að allur siðferðislegur grunnur undir þeirri ákvörðun hefur nú endanlega hrunið. Það er ekkert sem getur réttlætt það að leyfa Ísrael þátttöku í söngvakeppninni áfram.“
Eurovision Ríkisútvarpið Eurovision 2026 Fjölmiðlar Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Magnús Þór lést við strandveiðar Innlent Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Innlent Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Innlent Óvissa uppi um „stóra og fallega“ frumvarpið og Musk hótar hefndum Erlent Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Innlent „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ Innlent Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Innlent Beðið eftir krufningarskýrslu Innlent Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Fleiri fréttir Hvammsvirkjun bíður dóms Hæstaréttar Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Matargjöfum Fjölskylduhjálpar hætt: „Stingur okkur í hjartastað“ Tekjur af bjórsölu orðnar meiri en af miðasölu Hryssan Hlökk er „Dekurprinsessa“ hjá Ásmundi Erni Taka þurfi ákvörðun um sameiningu vinstrisins fyrr en síðar Samfélagið fari ekki á hliðina án tíufrétta Yfir helmingur drengja í sjötta bekk lent í slagsmálum Þjónusta sérgreinalækna við börn nú án endurgjalds Mesta fylgi síðan 2009 Börn í slagsmálum, arðbær bjórsala og dekurprinsessa Beðið eftir krufningarskýrslu Stefna á að þrefalda fjölda hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ Vill tryggja bráðaviðbragð í Öræfum allan ársins hring Lágkúra og della að mati ráðherra Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Ræddu við sextíu manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Magnús Þór lést við strandveiðar Seinkun fréttatímans seinkað Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Tvöfalt siðgæði EBU mikið áhyggjuefni Landris heldur áfram í Svartsengi Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Samstöðin hafi aldrei verið í hættu „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ „Held að þau átti sig ekki á því hvað þetta skiptir okkur miklu máli“ Læknanemar fái víst launahækkun Prófessor segir málþófið komið út fyrir öll mörk Bundið slitlag að fossinum Dynjanda í næsta mánuði Ragna yfirgefur Alþingi mánuði fyrr en áætlað var Sjá meira