Leik lokið: Valur-KR 6-1 | Vals­menn rassskelltu KR-inga

Haraldur Örn Haraldsson skrifar
Valsmenn fagna einu marka sinna í kvöld. Hér hefur Orri Sigurður Ómarsson skorað.
Valsmenn fagna einu marka sinna í kvöld. Hér hefur Orri Sigurður Ómarsson skorað. Vísir/Diego

Valsmenn unnu 6-1 stórsigur á erkifjendum sínum úr Vesturbænum í Reykjavíkurslag í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Enn á ný buðu KR-ingar til markaveislu en að þessu sinni fengu lærisveinar Óskars Hrafns Þorvaldssonar stóran skell.

Patrick Pedersen, markahæsti maður deildarinnar, skoraði fimmta mark Valsmenna í leiknum en var þá búinn að gefa tvær stoðsendingar. Kristinn Freyr Sigurðsson, Tómas Bent Magnússon, Orri Sigurður Ómarsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson og Lúkas Logi Heimisson skoruðu hin mörkin. Jóhannes Kristinn Bjarnason skoraði mark KR úr vítaspyrnu.

Valsmenn endurheimtu þriðja sætið, eru stigi á eftir Blikum og fimm stigum á eftir toppliði Víkinga.

KR-ingar hafa nú fengið 32 mörk á sig í fyrstu tólf leikjunum en það hafa verið skoruð 63 mörk í leikjum liðsins til þessa í sumar.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira