Bylgjulestin verður í stuði á Bíladögum á Akureyri Bylgjulestin 12. júní 2025 13:13 Bylgjulestin mætir til Akureyrar næsta laugardag og verður í beinni frá Bíladögum milli kl. 12 og 16. Mynd/Axel Darri Þórhallsson. Bylgjulestin heldur för sinni áfram um landið og næsti viðkomustaður er Akureyri þar sem Bylgjan verður í beinni frá Bíladögum á laugardaginn milli kl. 12 og 16. „
Það er alltaf nóg um að vera á Akureyri og fastur liður í júní er auðvitað hinir árlegu Bíladagar. Þar ætlum við að vera á laugardaginn og koma okkur fyrir nánast við rásmarkið á svæði Bílaklúbbs Akureyrar,“ segir Bragi Guðmunds útvarpsmaður en með honum í för verður Kristín Ruth Jónsdóttir. Bragi Guðmunds og Kristín Ruth Jónsdóttir sjá um Bylgjulestina á Akureyri á laugardag.Mynd/Viktor Freyr. Góðir gestir munu kíkja í heimsókn eins og venjulega. „Við ætlum að fá til okkar Einar stjórnarformann Bílaklúbbsins sem mun fara yfir þessa frábæru dagskrá sem verður alla helgina. Einnig vonumst við til að hitta forsvarsfólk bæjarins til að heyra af öllu því góða sem er að gerast í bænum og svo kíkja Hvanndalsbræður til okkar með glænýjan sumarsmell.“ Bíladagar á Akureyri er einn stærsti íþróttaviðburður sinnar tegundar sem haldinn er á Íslandi og er einskonar árshátíð áhugamanna um mótorsport. Hátíðin fer fram dagana 13.-17. júní á svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg. Á dagskrá er m.a. spyrnu keppni, bíla limbó, Rallycross, hávaðakeppni, bílasýning sem fer fram í Boganum og margt fleira. „Það er alltaf gaman að koma til Akureyrar hvenær sem er ársins og ekki síst vegna þess að þar er alltaf hlýtt í veðri og fólkið er gott. Við vonumst svo sannarlega til að sjá sem flesta,“ segir Bragi. Samstarfsaðilar Bylgjulestarinnar verða með í för. Sjóvá og Samgöngustofa munu fjalla um umferðaröryggi, Topptjöld og vagnar verða með iKamper vagn til sýnis, 7up Zero gefur gestum frískandi drykki og bílaumboðið Askja verður með bílasýningu. Mynd/Axel Darri Þórhallsson. Næstu áfangastaðir Bylgjulestarinnar í sumar 21. júní Hallormsstaðarskógur 28. júní Hafnarfirði 5. júlí Akranes 13. júlí Selfoss 19. júlí Hljómskálagarðurinn 26. júlí Vaglaskógur
Bylgjan Bylgjulestin Akureyri Mest lesið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Sigga Ózk keppir í Ungfrú Íslandi Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Óbilandi trú á eigin ágæti Gagnrýni Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Lífið Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira