Lífið samstarf

„Hörður Gríms­son er orðinn lúxus­vanda­mál“

Sögur útgáfa
„Þetta er mjög ólíkt mér. Ég held aldrei partý." Stefán Máni fagnar þrjátíu ára ferli á ritvellinum og býður í veislu á Reykjavík Röst á hrekkjavökunni.
„Þetta er mjög ólíkt mér. Ég held aldrei partý." Stefán Máni fagnar þrjátíu ára ferli á ritvellinum og býður í veislu á Reykjavík Röst á hrekkjavökunni.

Stefán Máni hefur gefið út um þrjátíu bækur frá árinu 1996 og fagnar nú 30 ára rithöfundarafmæli. Þrjár bækur koma út á þessu ári, Þegar heimurinn fórst, sem segir frá tveimur einstaklingum sem virðast einu eftirlifandi manneskjurnar eftir heimsendi, Gleym mér ei, þar sem lögreglumaðurinn sérlundaði Hörður Grímsson glímir við flókið sakamál sem hefur ásótt hann í mörg ár, og Hvaðan kemur kúkafýlan?, barnabók með teikningum eftir Halldór Baldursson.

Þekktastur er Stefán Máni fyrir myrkar glæpasögur og hefur fjórum sinnum hlotið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, síðast í fyrra fyrir bókina Dauðinn einn var vitni. Áður hlaut hann Blóðdropann fyrir Skipið, Húsið og Grimmd.

Hann segist hálfofvirkur þegar kemur að skrifum eins og ferillinn gefur kannski til kynna og átti til dæmis ekki í neinum vandræðum með að skrifa þrjár ólíkar bækur í einu. Það sé hressandi fyrir heilann að hafa mörg járn í eldinum.

„Ég kem ótrúlega miklu í verk, ég hef eiginlega aldrei skilið það sjálfur. Ég er alveg lúmskt ofvirkur og er alltaf að vinna en ég skipti skrifunum upp innan sólarhringsins, vakna í eitt verkefni og nota svo kvöldið í annað verkefni og svo seinna um kvöldið fer ég í þriðja verkefnið. Mér finnst þetta hressandi. Ef ég líki þessu við íþróttir þá er erfitt að hlaupa allan daginn, en ef maður hleypur smá, fer svo á þrekhjól, svo í lyftingar og er alltaf að gera eitthvað nýtt þá hefur maður endalaust úthald. Þetta heldur heilanum heitum,“ segir hann, hugmyndirnar komi hreinlega á færibandi.

„Hugmyndirnar koma alltaf, alveg magnað, heilinn í mér er í yfirvinnu og enginn skortur á þeim … fékk nýja hugmynd í morgun! Stundum hugsa ég: „Er ég að nenna þessu?“ 

Þetta er eins og að verða allt í einu skotinn í einhverjum, maður fær viðkomandi alveg á heilann og finnst þetta alveg æðisleg hugmynd. Stundum þróast þetta út í alvarlegt ástarsamband og ég skrifa þessa bók en stundum rennur það bara út í sandinn og maður gleymir þessu. Ég veit ekki hvernig heilinn í öðrum virkar en minn er mjög duglegur.

„En ég hef reyndar ekki gert þetta áður, að skrifa þrjár bækur í einu. Ein þeirra er myndskreytt barnabók, það fóru ekki mörg ár í hana og ekki teiknaði ég myndirnar, en svo gaf ég út heimspekilega skáldsögu í vor sem ég lagði mjög mikla vinnu í, sú bók var mörg ár í vinnslu og var langt komin. Ég er mjög stoltur af þeirri bók, en aðalvinnan er samt í Herði Grímssyni,“ segir Stefán en Gleym mér ei er fjórtánda bókin þar sem Hörður Grímsson kemur fyrir. En rennur hann þá ekki áreynslulaust fram eftir öll þessi ár?

„Jú, okkar samstarf er mjög gott, ég þekki hann vel, við eigum skap saman. Það er samt alltaf vinna að skrifa bækur. Það þarf stanslaust að lesa yfir og allt þarf að vera sæmilega spennandi og gallalaust, þetta dettur ekki alveg út úr manni. Það er mikil vinna í að smíða plott og morðgátu og glæp en Hörður sjálfur, það er minnsta smíðin að skrifa hvað hann er að hugsa,“ segir Stefán.

Gleym mér ei, nýjasta glæpasaga Stefáns Mána, gerist að hluta til á Snæfellsnesi, heimaslóðum höfundarins.

Hörður Grímsson er sérstakur karakter, þrjóskur réttlætissinni sem fer sínar eigin leiðir og gefst ógjarnan upp þegar hann telur eitthvað ósagt eða órannsakað. Hann er klaufalegur í hversdagslífinu og sérkennilegur í útliti, rauðhærður og úfinn rumur sem klæðist síðum leðurfrakka. Hann er svakalega vinsæll og snertir greinilega strengi í hjörtum lesenda.

„Hörður er eiginlega lúxusvandamál, hann er orðinn svo vinsæll, fólk heimtar hann sem er frábært. Hann virðist hafa einhvers konar dýrslegt aðdráttarafl,“ segir Stefán.

 „Samband kvenna við Hörð er til dæmis magnað, þær eru obsessed.“ 

„Ég var gestur á námskeiði hjá Katrínu Jakobsdóttur þar sem voru aðallega konur og þar kom fram að ýmist eiga þær í ástar-haturssambandi við Hörð og finna til móðurlegra tilfinninga gagnvart honum, eða eru skotnar í honum, finnst hann æðislegur og ein talaði um hann með lostafullum svip, maður verður bara feiminn við þetta því þetta er bara kall sem ég er með inni í hausnum á mér,“ segir Stefán hlæjandi. 

Stefán Máni er þekktastur fyrir glæpasögur sínar um rannsóknarlögreglumanninn Hörð Grímsson, og hefur hann fjórum sinnum hlotið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin.

„Það er ekki amalegt að skrifa inn í vinsældir en stundum langar mig að skrifa eitthvað annað en það sem Hörður er að brasa,“ bætir hann við enda hefur hann skrifað um skuggahliðar samfélagsins í yfir tvo áratugi eða síðan Svartur á leik kom út fyrir 22 árum.

„Ég hef síðan þá verið nánast alveg í glæpunum og spennunni sem er skemmtilegt en ég fæ alveg öðruvísi hugmyndir líka. Ég hef til dæmis mikinn áhuga á heimspeki,“ segir hann en ein nýju bókanna, Þegar heimurinn fórst, er eftir-heimsenda-bók.

„Þarna er ég að fá útrás fyrir tilvistarlegar og heimspekilegar pælingar. Ég les mikið þannig bækur og velti mikið fyrir mér stóru spurningunum um lífið og tilveruna, er til dæmis líf eftir dauðann? Er Guð til? Mér finnst þetta endalaust áhugavert og er að skrifa í kringum þessar pælingar,“ segir Stefán en bókin fjallar um tvær manneskjur, Míu og Tomma, sem eru hugsanlega síðustu manneskjurnar á jörðinni. Þau tvö reyna að fóta sig í nýjum veruleika en takast á við hann á ólíkan hátt.

„Mía fer inn á við að pæla í alheiminum, eilífðinni og finnur mjög spennandi staðreyndir og svör, finnst mér, meðan Tommi er fastur í efnishyggjunni og er að sanka að sér gulli og gimsteinum sem er algjörlega tilgangslaust í þessum heimi. Maður á aldrei að matreiða skoðanir eða koma með endanleg svör en ég kom til skila ákveðnum hugmyndum. 

Ég er til dæmis sannfærður um eilíft líf og æðri tilvist, hitt væri svo niðurdrepandi. 

„En ég hugsa að ég eigi ekki eftir að skrifa svona mikla pælingabók aftur, kláraði það þarna. Ég lauma þessum heimspekipælingum mínum líka oft í Hörð,“ segir Stefán. Hann segist nálgast ritstörfin öðruvísi en þegar hann var að hefja ferilinn.

„Reynslan hjálpar mér, maður verður flinkari. Ég man hvað það var erfitt fyrst að berja saman setningar og halda stíl. Ég var 26 ára þegar ég gaf út fyrstu bókina, ungur og barnlaus, með allan tímann í heiminum, en notaði hann ekki vel. Í dag þegar lífið er flóknara og miklu minni tími nota ég hann betur og kann að meta mínúturnar sem ég hef. Ég eyði þeim ekki í sjónvarpsgláp eða partýstand, mér finnst rosalega gaman að „vinna“ innan gæsalappa því þetta er bara að skapa, sem eru forréttindi. Auðvitað líka erfitt og smá vöðvabólga, en þetta er ánægja,“ segir hann. Heilt yfir er hann ánægður með ferilinn en myndi þó ekki skrifa sumar af fyrstu bókunum í dag.

„Þrjátíu ár er langur tími og ég er ekki sami maðurinn, ég myndi ekki gera þessar bækur í dag. En ég horfi lítið til baka, heilt yfir er ég mjög sáttur. Það eru forréttindi að eiga alla þessa lesendur. Mér gengur vel og það er ekkert sjálfgefið.“

Og talandi um að nota tímann betur í dag en sem ungur og barnlaus. Stefán Máni er einstæður faðir en dóttir hans er tveggja og hálfs árs og einmitt heima í vetrarfríi í leikskólanum þegar þetta spjall fer fram. Stefán segir þó ekkert krefjandi að púsla saman ritstörfum og foreldrahlutverkinu.

Bækurnar þrjár sem hafa komið út eftir Stefán Mána á afmælisárinu 2026. Barnabókin Hvaðan kemur kúkafýlan er unnin í samstarfi við Halldór Baldursson teiknara.

„Ég reyni ekki að blanda þessu saman, geri bara eitt í einu. Að eiga lítið barn eru forréttindi, þau vaxa hratt og ég er meðvitaður um það. Ég leyfi mér bara að vera pabbi og skipta um bleyjur og útbúa snakk og svara heimspekilegum spurningum hennar. Ég vakna á undan henni og skrifa og nota svo kvöldin eftir að hún er sofnuð. Næsta mál er svo bara að verða afi,“ segir hann hlæjandi en eldri börn Stefáns Mána eru komin á fullorðinsaldur. „Nei, það er engin pressa frá mér með það enda hef ég bara nóg að gera, leiðist ekki neitt og er bara sjálfur að búa til börn.“

Í tilefni 30 áranna verður blásið til útgáfufögnuðar á Reykjavík Röst við Geirsgötu við smábátahöfnina, laugardaginn 31. október. Það er hrekkjavakan sjálf sem á kannski einkar vel við en ákveðnir atburðir í bókinni Gleym mér ei gerast á hrekkjavöku. Stefán segir stefna í þrusupartý og hlakkar til þó hann sé enginn partýkall.

„Þetta er mjög ólíkt mér. Ég held aldrei partý. Ég er mjög mikill introvert og skil þess vegna fólk sem nennir ekki að koma en ég vil samt draga alla í þetta eina partý. Halli Melló verður veislustjóri, mætir með gítarinn og við ætlum að syngja saman klassísk lög. Svo verður upplestur og tónlist. Það stefnir í mjög spennandi veislu.“

Húsið opnar klukkan 20 og allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.