Viðskipti innlent

Rapyd sé ís­lenskt fyrir­tæki með kenni­tölu frá 1983

Árni Sæberg skrifar
Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd á Íslandi.
Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd á Íslandi.

Forsvarsmenn Rapyd á Íslandi segja fyrirtækið íslenskt og að starfsemi þess byggi á áratugalangri sögu Valitor og Korta, sem hafi verið sameinuð undir merkjum Rapyd. Þeir sýni því skilning að fólk hafi skoðun á átökum fyrir botni Miðjarðarhafs en umfjöllun þurfi að byggja á staðreyndum.

Þetta segir í yfirlýsingu frá Rapyd á Íslandi, sem hefst á þeim orðum að fyrirtækið vilji koma yfirlýsingu á framfæri í ljósi umfjöllunar um það. Þar er vísað til fréttaflutnings af því að íslenska ríkið hefði endurnýjað samning um greiðslumiðlun við Rapyd. Ákvörðun um að endurnýja samninginn hefur verið harðlega gagnrýnd vegna þess að Rapyd á Íslandi er í eigu ísraelska fyrirtækisins Rapyd. 

Fjármála- og efnahagsráðherra sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í gær að Ríkiskaup hefðu þurft að endurnýja samninginn, enda hefðu þau ellegar gerst brotleg við lög.

Hvatt til sniðgöngu

Rapyd hefur verið í miklum ólgusjó undanfarið vegna stríðsins sem nú geisar milli Ísraels og Palestínu. Það er ekki síst vegna yfirlýsinga forstjórans Ariks Shtilman um að Rapyd styðji Ísrael. 

Þegar Shtilman var inntur eftir skýringum á yfirlýsingu sinni ítrekaði hann orð sín og sagði Ísraela munu „drepa hvern einasta Hamas-hryðjuverkamann í Gasa og útrýma þeim“ sama hver fórnarkostnaðurinn væri.

Frá því Shtilman lýsti þessu yfir hefur stór hópur Íslendinga tekið sig til og sniðgengið Rapyd Europe sem starfar hér á landi en er í eigu hins ísraelska Rapyd.

Sniðgangan er hluti af stærri sniðgöngu á ísraelskum vörum sem alþjóðlega hreyfingin BDS (e. Boycott Divestment Sanctions), sem var stofnuð í Palestínu 2005, stendur fyrir til að mótmæla hernámi Ísraela á Gasa.

Lykilstoð í innlendri greiðslumiðlun

Í yfirlýsingu Rapyd segir að Rapyd á Íslandi sé íslenskt fyrirtæki. Starfsemi fyrirtækisins byggi á áratuga langri sögu Valitor og Korta, sem hafi verið sameinuð undir merkjum Rapyd. Fyrirtækið hafi sinnt greiðslumiðlun fyrir íslensk fyrirtæki, banka og einstaklinga í rúmlega fjóra áratugi. Fyrirtækið hafi sem slíkt verið lykilstoð í innlendri greiðslumiðlun og eigi djúpar rætur í íslensku samfélagi.

Fyrirtækið starfi sem íslenskt hlutafélag og kennitala þess sé frá 1983. Fyrirtækið sé með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands og greiði skatta og skyldur á Íslandi. Hjá Rapyd á Íslandi starfi í dag um 180 einstaklingar.

Fyrirtækið sé í eigu alþjóðlega fjártæknifyrirtækisins Rapyd, sem sé að mestu í eigu alþjóðlegra fjárfestingasjóða og sé með starfsemi víða um heim.

Vegna umfjöllunar um samninga Rapyd á Íslandi við Fjársýsluna vilji Rapyd benda á að samningurinn er við Rapyd á Íslandi (Rapyd Europe hf.)

„Stjórnendur Rapyd á Íslandi sýna því skilning á fólk hafi sterkar skoðanir á átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Allir eiga rétt að láta sína skoðun í ljós. Mikilvægt er hins vegar að umfjöllun sé byggð á staðreyndum.“


Tengdar fréttir

Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sæti sitt á HM með öðrum öruggum sigrinum á Ísrael á jafnmörgum dögum að Ásvöllum í gær. HM-sætinu var fagnað en stuðningsaðili HSÍ falinn í myndatöku eftir leik.

Fjöldi fyrirtækja á skiltum mótmælenda

Svokölluð sniðganga var gengin í Reykjavík og á Akureyri í dag. Um er að ræða viðburð á vegum félagsins Ísland-Palestína með þann tilgang að hvetja til sniðgöngu á vörum frá Ísrael til stuðnings Palestínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×