Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Kristján Már Unnarsson skrifar 3. maí 2025 22:30 Þuríður Sigurðardóttir söngkona er fædd og uppalin í Laugarnesi. Fjær til vinstri má sjá hvernig garðurinn við nýju landfyllinguna girðir nú þegar fyrir útsýni út á sundin. Sigurjón Ólason Þuríður Sigurðardóttir söngkona kallar eftir því að Laugarnes í Reykjavík verði friðlýst sem búsetu- og menningarlandslag. Hún býður upp á sögugöngu um Laugarnes klukkan þrjú á morgun, sunnudag, þar sem hún ætlar meðal annars að fjalla um þá kenningu að landnámsbær Ingólfs hafi verið í Laugarnesi.
Í fréttum Stöðvar 2 hittum við Þuríði í Laugarnesi. Hún er þar fædd og uppalin og bjó í Laugarnesbænum til nítján ára aldurs. „Þetta var leiksvæðið og hér lærði maður að lesa fugla og blóm og náttúruna af því að við vorum úti allan daginn.“ Henni er umhugað um Laugarnes og fer fyrir undirskriftasöfnun á netinu um að það verði friðað. „Að Laugarnesið verði friðlýst sem búsetu- og menningarlandslag. Að landslaginu verði ekki breytt og að fólk fái að njóta þess að hér er heilmikil saga.“ Ingólfur í Laugarnesi Og vitnar í kenningu Árna Árnasonar um að hér hafi fyrsti landnámsmaðurinn búið. Nafnið Reykjavík sé enda dregið af víkinni þar sem heiti lækurinn úr Laugardal, Laugalækurinn, rann til sjávar, sem var á Kirkjusandi við Laugarnes. Bæjarhóllinn þar sem Laugarnesbærinn stóð. Þar var æskuheimili Þuríðar.Sigurjón Ólason „Manni finnst einhvern veginn eðlilegra að hann hafi búið á háum hól hér,“ og vísar til bæjarhólsins í Laugarnesi. Hann sé friðlýstur ásamt kirkjugarðinum sem sagður er sá elsti í Reykjavík. Og kirkja hafi verið komin löngu fyrr í Laugarnesi en í Kvosinni. Hallgerður langbrók er sögð hafa búið í Laugarnesi, bæði áður en hún giftist Gunnari á Hlíðarenda og einnig eftir lát hans, og þar er hún sögð grafin. Jón Sigurðsson forseti tengist einnig Laugarnesi en hann bjó þar um þriggja ára skeið meðan hann var biskupsritari en Laugarnes var biskupssetur um tíma. Sjá einnig: Landfyllingin sögð fara gegn verndaráætlun um Laugarnestanga Landfyllingin umhverfisslys Hún segir mikilvægt að komandi kynslóðir geti notið þess sem þó er eftir af óspjallaðri náttúru Laugarness. Landfyllingin sem borgaryfirvöld og Faxaflóahafnir gerðu við Laugarnes.Sigurjón Ólason „Fjaran hér, Norðurkotsvör, er eina óspjallaða fjaran á allri norðurströnd Reykjavíkur.“ Sjá einnig: Landfylling getur orðið góð viðbót við útivistarsvæðið í Laugarnesi Og henni líst ekkert á áform ráðamanna Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna með nýrri landfyllingu sem gerð var án umhverfismats. „Sem að okkur finnst herfilegt umhverfisslys. En landfyllingin er komin og það stendur jafnvel til að byggja á henni, og ef að það gerist þá hverfur útsýnið til Viðeyjar héðan frá Laugarnesi og alveg út að Skúlagötu.“ Útsýnið til Viðeyjar úr Laugarnesi. Sjá má vinnuvél á landfyllingunni. Þuríður óttast að byggt verði fyrir þetta útsýni.Sigurjón Ólason Sögugangan á morgun hefst við við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga klukkan 15.
Reykjavík Skipulag Hafnarmál Borgarstjórn Menning Fornminjar Kirkjugarðar Tengdar fréttir „Laugarnesið hafði mjög mikil áhrif á mig í uppvexti“ Andrea Fanney Jónsdóttir textílhönnuður og klæðskerameistari opnaði síðustu helgi listasýninguna För þar sem öll prjónaverkin eru innblásin af fuglalífi borgarinnar. Sýningin er hluti af Prjónavetri í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi og er sú fyrsta í röð stuttra sýninga og viðburða veturinn 2024 til 25, þar sem ljósi er varpað á prjónahönnun og stöðu íslensks prjónaiðnaðar. 21. nóvember 2024 09:02 „Guð forði okkur frá því að verði byggt þarna“ Ný landfylling í Sundahöfn er mikið deilumál og eru íbúar í Laugarnesi ekki parsáttir við það að verið sé að bæta í fyllinguna þessa dagana. Áætlanir eru uppi um að nýjar höfuðstöðvar Faxaflóahafna rísi þar sem verið er að koma landfyllingunni niður og eru íbúar á svæðinu áhyggjufullir um að náttúru- og útsýnisspjöll fylgi þessari uppbyggingu. 15. júní 2021 15:10 Þar byggði Ingólfur - 1150 ár frá upphafi landnáms í Reykjarvík - Sú hefð hefur myndast að miða upphaf landnáms norrænna manna á Íslandi við árið 874. Í ár eru því liðin 1150 ár frá upphafi landnáms þeirra. Ingólfur var fyrsti landnámsmaðurinn. Heimildir um föðurnafn hans eru misvísandi og misgóðar en um það, hvar hann setti höfuðból sitt niður, hefur skapast sú hefð að það hafi verið í Vík, jörðinni við Aðalstræti. Síðar var nafnið Reykjavík yfirfært á þá jörð. 22. júní 2024 15:31 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira
„Laugarnesið hafði mjög mikil áhrif á mig í uppvexti“ Andrea Fanney Jónsdóttir textílhönnuður og klæðskerameistari opnaði síðustu helgi listasýninguna För þar sem öll prjónaverkin eru innblásin af fuglalífi borgarinnar. Sýningin er hluti af Prjónavetri í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi og er sú fyrsta í röð stuttra sýninga og viðburða veturinn 2024 til 25, þar sem ljósi er varpað á prjónahönnun og stöðu íslensks prjónaiðnaðar. 21. nóvember 2024 09:02
„Guð forði okkur frá því að verði byggt þarna“ Ný landfylling í Sundahöfn er mikið deilumál og eru íbúar í Laugarnesi ekki parsáttir við það að verið sé að bæta í fyllinguna þessa dagana. Áætlanir eru uppi um að nýjar höfuðstöðvar Faxaflóahafna rísi þar sem verið er að koma landfyllingunni niður og eru íbúar á svæðinu áhyggjufullir um að náttúru- og útsýnisspjöll fylgi þessari uppbyggingu. 15. júní 2021 15:10
Þar byggði Ingólfur - 1150 ár frá upphafi landnáms í Reykjarvík - Sú hefð hefur myndast að miða upphaf landnáms norrænna manna á Íslandi við árið 874. Í ár eru því liðin 1150 ár frá upphafi landnáms þeirra. Ingólfur var fyrsti landnámsmaðurinn. Heimildir um föðurnafn hans eru misvísandi og misgóðar en um það, hvar hann setti höfuðból sitt niður, hefur skapast sú hefð að það hafi verið í Vík, jörðinni við Aðalstræti. Síðar var nafnið Reykjavík yfirfært á þá jörð. 22. júní 2024 15:31